Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson:)
Herra forseti. Mér þykir leitt ef þær tilvísanir sem ég var með hér í ræðu þess ágæta manns Bjarna Benediktssonar hafa valdið einhverjum misskilningi. Ég var með tilvitnanir í það sem hann sagði á Alþingi 1969 sem ég taldi mjög athyglisvert og skal ég ekki fara fleiri orðum um það. Sjálfsagt var það allt hárrétt sem hv. 2. þm. Norðurl. e. nefndi hér í þessu sambandi.
En um þau verkefni sem umhverfisráðherra eru ætluð hef ég reyndar fjallað hér. Ég vil nú fyrst upplýsa að eftir því sem mér er tjáð af formanni allshn. Nd. er samkomulag þar milli fulltrúa stjórnarflokkanna um mjög litlar breytingar á því frv. sem þar liggur fyrir. Það mun verða afgreitt þar, gerir hann ráð fyrir, annan mánudag og fær þá vonandi tiltölulega skjóta umferð hér í gegn af því að um þetta mál er mikið búið að ræða.
Hins vegar mun ég með reglugerð fela umhverfisráðherra mál sem ég skal endurtaka í fáeinum orðum.
1. Almenna yfirstjórn og samræmingu á aðgerðum hinna fjölmörgu ráðuneyta sem um umhverfis- og mengunarmál fjalla að einhverju leyti nú. Hér hefur oft verið nefnt að þau séu átta og því alveg ljóst að það þarf vissulega að samræma það sem þaðan kemur.
2. Fræðslu- og upplýsingahlutverk. Að hefja þegar undirbúning að því og sjá um það verkefni.
3. Alþjóðleg samskipti á sviði umhverfismála sem, eins og ég hef áður rakið, eru mjög mikil.
4. Ýmis málefni umhverfismála er verið að skoða þessa stundina sem hvergi eru í raun og veru fast bundin í lögum og kemur til greina að fela umhverfisráðuneytinu þegar að fjalla um. Ég vil gæta þess mjög vandlega að með reglugerð verði ekkert flutt til umhverfisráðuneytis sem bundið er í lögum þótt, eins og ég sagði áðan, um það séu skiptar skoðanir milli fræðimanna
hvort það kunni jafnvel að vera heimilt. Og ég vil ekki flytja neitt sem ég hef þegar með frv. lagt fyrir Alþingi og spyr Alþingi um. Ekkert slíkt verður flutt jafnvel þó að það hefði e.t.v. mátt að öðrum kosti. En mikilvægasta verkefni umhverfisráðherra að þessu upptöldu verður að sjálfsögðu að undirbúa starfsemi umhverfisráðuneytisins sjálfs, hefja þann undirbúning þannig að þegar fylgifrv. kemur í gegn, væntanlega mjög fljótlega, þá verði þar umhverfisráðuneyti til sem getur tekið til óspilltra málanna.