Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um stofnun umhverfisráðuneytis, stofnun ráðuneytis sem hefði átt að vera komið fyrir a.m.k. tíu árum síðan. Þau verkefni sem koma til með að falla undir þetta ráðuneyti verða að öllum líkindum samþykkt hér á þinginu innan mjög fárra daga og kvíði ég því ekki að væntanlegur umhverfisráðherra hafi ekki nóg að gera við að skipuleggja það ráðuneyti sem hann kemur til með að fá í hendur og taka ákvarðanir nú strax á Norðurlandaþingi sem varða framtíð Íslands. Ég segi með þessum orðum já.