Bifreiðagjald
Föstudaginn 23. febrúar 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 658 er álit fjh.- og viðskn. sem hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að það verði samþykkt. Matthías Bjarnason og Friðrik Sophusson áskilja sér rétt til að flytja eða styðja brtt. er fram kunna að koma. Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ, og Hannes Sigurðsson, hagfræðingur VSÍ, komu til viðræðna við nefndina um frv. Undir þetta rita allir nefndarmenn en með fyrirvara Þórhildur Þorleifsdóttir, Matthías Bjarnason og Friðrik Sophusson.
    Hagfræðingur Alþýðusambandsins, Ari Skúlason, dreifði á fundinum minnisblaði fyrir fjh.- og viðskn. og ég vil, með leyfi forseta, lesa það upp vegna þess að þar kemur fram viðhorf Alþýðusambandsins til þessa máls.
    ,,Minnisblað vegna fundar með nefndinni þann 23. jan. 1990 um frestun gjalddaga bifreiðagjalds.
    1. Í viðræðum fulltrúa ASÍ við ríkisstjórnina var lögð áhersla á að aðgerðir stjórnvalda til að draga úr hækkun framfærsluvísitölu beindust að því að lækka verð á brýnustu nauðsynjavörum, t.d. brauði. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki talið sér fært að verða við þeim tilmælum.
    2. Með frestun gjalddaga bifreiðagjaldsins er verið að koma í veg fyrir að framfærsluvísitalan hækki 1. mars vegna þessa gjalds. ASÍ telur þessa aðgerð jákvæða, enda er með henni komið í veg fyrir 0,3% hækkun á framfærsluvísitölu 1. mars miðað við upphaflegar áætlanir.
    3. Fulltrúar fjmrn. hafa viðrað hugmyndir við ASÍ um hvernig þeir geti hugsað sér að ná takmarkinu um 3% lækkun á framfærsluvísitölunni miðað við það sem annars hefði orðið. Okkur er ekki kunnugt um að búið sé að útfæra þessar hugmyndir endanlega.``
    Undir þetta ritar fyrir hönd ASÍ Ari Skúlason.
    Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð. Nefndin leggur sem sagt til að frv. verði samþykkt, þrír nefndarmenn að vísu með fyrirvara.