Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi, kjörbréf 1. varaþingmanns Alþb. í Norðurl. e., Svanfríðar Jónasdóttur, sem kæmi inn í stað 4. þm. Norðurl. e. Steingríms J. Sigfússonar.
    Kjörbréfanefnd hefur athugað þetta erindi og leggur til að það verði samþykkt.