Flm. (Ásgeir Hannes Eiríksson):
Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir till. til þál. um frjálsan flugrekstur og flug. Hún hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa frv. til laga um að gefa flugrekstur frjálsan á Íslandi ásamt leyfi til áætlunarflugs, leiguflugs og vöruflutninga innan þeirra marka sem alþjóðalög og samningar leyfa. Frumvarpið verði lagt fyrir næsta löggjafarþing haustið 1990.``
Flutningsmaður er þeirrar skoðunar að þar sem Íslendingar eru mjög háðir flugsamgöngum, bæði innan lands og utan, sé eðlilegt að flugsamgöngur séu ekki heftar á þann hátt sem hér hefur verið nánast frá upphafi, leyfisbundnar þannig að mjög erfitt og nánast útilokað er fyrir einstaklinga að hasla sér völl á þessu sviði þar sem allar helstu áætlunarleiðir frá landinu og innan lands eru bundnar. Því er ekki um auðugan garð að gresja á þessum vettvangi. Rekstur ferðaþjónustu er mikilvæg atvinnugrein hér á landi og við bindum mjög miklar vonir við hana sem eina af þeim framtíðargreinum sem taka við vinnuafli og skapa okkur gjaldeyri í þjóðarbúið. Flugið er einn stærsti þátturinn í þessum atvinnuvegi. Þegar er farið að bera á nokkru atvinnuleysi, bæði í flugrekstrinum og í ferðamannaþjónustunni.
Áratugum saman voru hér starfandi tvö flugfélög sem héldu uppi samkeppni en þau voru sameinuð í fyrirtækið Flugleiðir á sínum tíma. Merkilegar tölur eru til í sambandi við komu ferðamanna til landsins á þeim tíma sem flugfélögin voru tvö og síðan eftir sameininguna. Í fskj. með tillögunni er súlurit sem sýnir fjölda erlendra ferðamanna til Íslands árin 1960--1988. Með leyfi forseta vil ég vitna í það. Meðan
flugfélögin störfuðu tvö á árunum 1960--1973 jókst ferðamannastraumur til landsins úr 10 þús. manns á ári hægt og bítandi upp í rúmlega 70 þús. árið 1973. Á tímabilinu 1973--1982 þegar Flugleiðir voru einar um hituna stóð fjöldi ferðamanna nánast í stað. Það voru litlar breytingar. Árin 1974 og 1980 fer fjöldinn niður fyrir 70 þús. en annars er hann rétt um og yfir 70 þús. mörkin. Árið 1982 er Arnarflugi veitt leyfi til að fljúga á milli landa. Þá strax fer erlendum ferðamönnum að fjölga og það mjög ört. Um það bil 72 þús. erlendir ferðamenn koma hingað 1982 en súlan rís strax og er á árinu 1987 komin upp í 130 þús. manns.
Af þessu má draga þann lærdóm að samkeppni sé af hinu góða í flugrekstri. A.m.k. virðist samkeppnin fjölga erlendum ferðamönnum á landinu og það er mikilvægur þáttur í að byggja upp þá ferðaþjónustu sem við ætlum okkur að treysta á í framtíðinni. Ferðaþjónustan þarf á fleiri ferðamönnum að halda til að draga úr atvinnuleysi í stéttinni og almennu atvinnuleysi í landinu og taka á móti nýju fólki á vinnumarkaðinum. Okkur veitir ekki af nýjum peningum í þjóðarbúið, sérstaklega á þessum erfiðu tímum þegar atvinnuleysi er í mörgum stéttum og gjaldþrot víða.
Þá er flm. eindregið þeirrar skoðunar að með frelsi í flugrekstri fái Íslendingar sjálfir notið þeirra lágu fargjalda sem Flugleiðir bjóða erlendu fólki á útlendum mörkuðum en hafa verið forboðnir ávextir fyrir okkur Íslendinga hingað til. Þannig geta útlendingar flogið hingað fyrir mun lægri fargjöld en okkur standa til boða, Íslendingum sjálfum, að fljúga frá Íslandi og til annarra landa. Þetta er náttúrlega svo hróplegt misræmi að það nær ekki nokkurri átt, sérstaklega þar sem hér er um flugfélag að ræða sem oftar en einu sinni hefur leitað á náðir almennings í landinu. Bæði til að láta fella niður gjöld úr sameiginlegum sjóðum landsmanna og eins hefur þetta flugfélag oftar en einu sinni beðið almenning um að ábyrgjast flugvélakaup með vinnu sinni og eignum um ókomna framtíð í formi ríkisábyrgðar. Það er því lágmarkskrafa flm. að þetta flugfélag sjái sóma sinn í að bjóða Íslendingum a.m.k. jafnhagstæð fargjöld og útlendingum.
Árið 1992 mun sameiginlegur Evrópumarkaður væntanlega taka gildi. Þá losnar um allan flugrekstur í álfunni. Á þessari stundu er erfitt að sjá hvernig það kemur við á flugrekstur okkar Íslendinga. Þess vegna er ekki seinna vænna að gefa flugrekstur frjálsan til þess að Íslendingar geti búið sig undir þá samkeppni sem óneitanlega fylgir hinum mikla Evrópumarkaði árið 1992. Það er trú flm. að það eina sem geti haldið okkar hlut í þeim viðskiptum sé algert frelsi.
Stutt er síðan ríkið gaf eftir og veitti fólki möguleika á að stofna útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar. Ljósvakinn var gefinn frjáls. Reynslan af því frelsi er sú að hér hafa sprottið upp fjölmargar nýjar stöðvar. Fjöldi fólks hefur fengið atvinnu við þessar stöðvar mál og ekki er að sjá annað en landsmenn kunni ágætlega að meta þær. Frelsið á ljósvakanum hefur greinilega borið þann ávöxt sem við var að búast. Næst er að gefa frelsi í loftinu þannig að flugrekstur verði frjáls eins og fuglinn.
Í því kerfi sem við búum við í dag erum ýmsar brotalamir. Það er aldrei hægt að tryggja öllum þegnum sama rétt þegar áætlunarleiðum er úthlutað á þann hátt sem gert er í dag. Áætlunarleiðir til útlanda og innan lands eru bundnar árum
og áratugum saman hjá sama flugfélaginu og öðrum er ekki heimilt að keppa á þeim leiðum. Flm. lítur svo á að það sé skylda Alþingis að tryggja öllum þegnum sama rétt. Þess vegna sé það í rauninni í þeim anda sem Alþingi á að starfa eftir að gefa flugreksturinn frjálsan. Því er lagt til hér að samgrh. hefjist strax handa við að undirbúa lagafrv. sem tryggi að frelsi ríki í flugmálum í framtíðinni.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri um tillöguna en mæli með að henni verði vísað til 2. umr. og til allshn.