Frjáls flugrekstur
Mánudaginn 05. mars 1990


     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég vildi leiðrétta hér smámisskilning. Í fyrsta lagi held ég að það viti það hver einasti maður, sem fylgst hefur með verði á flugi til útlanda, að frá 1970 og til okkar tíma hefur verð á farseðlum til útlanda farið hlutfallslega lækkandi miðað við annað verðlag. Þetta hélt ég að öllum væri kunnugt um. Menn mega þá spyrja sjálfa sig að því hvort þeir haldi að þetta sé tilviljun, hvort þetta hafi komið til vegna samkeppni eða af einhverjum öðrum ástæðum, en ég hélt að allir vissu þetta. Annað blasir líka við. Það er náttúrlega enginn samkeppnismöguleiki á milli Arnarflugs og Flugleiða í dag vegna þess að annað félagið situr að öllum helstu leiðum, innan lands sem erlendis, og þess vegna er ekki um frjálsa samkeppni að ræða. Það er um leyfisbundna samkeppni að ræða sem býður ekki upp á neina möguleika til neins jafnvægis á milli. Í þriðja lagi: Það sem slegið var hér fram, eins og, ja, eins og spámennirnir gerðu í biblíunni þegar þeir tilkynntu hvað mundi nú gerast á næstu árum, að vísu spáðu þeir stundum aldir fram í tímann --- ég veit ekki hvað þessi spá náði langt fram í tímann, að flugfélög mundu sameinast, þeim mundi fækka, sirka til aldamóta, kemur hér fram. Það þarf ekki að leita út fyrir þingið til að fá svona upplýsingar í framtíðinni. Það má vel vera að hér séu lagðar þær staðreyndir á borðið sem menn vilji segja að sé hinn eini mikli sannleikur í þessu máli. Ég ætla ekki að dæma um það. Ég hef ekki þessar upplýsingar undir höndum. Ég sló því aftur á móti fram hér að eftir nokkur ár blasir það við að Íslendingar gætu stofnað flugfélag erlendis og fengið leyfi til að fljúga milli Íslands og útlanda vegna þess að allir flugferðasamningar eru gagnkvæmir. Þess vegna gætu þeir t.d. stofnað félag úti í Svíþjóð eða Noregi og óskað eftir því að hefja flug hér á milli. Nú eða þá í Amsterdam eða New York. Það er þetta sem blasir við. Íslendingar eiga þegar fyrirtæki sem starfa í Bandaríkjunum, tvö verulega stór og vel rekin fyrirtæki. Hvers vegna gætu þeir ekki alveg eins stofnað þar flugfélag og hafið samgöngur þaðan? Það er ekkert sem bannar að þetta sé gert og þess vegna vaknar spurningin: Er skynsamlegt að standa þannig að málum að bannað sé að gera þetta frá Íslandi?