Reiðvegaáætlun
Mánudaginn 05. mars 1990


     Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. á þskj. 579 um reiðvegaáætlun. Flm. þessarar þáltill. eru auk mín Jón Kristjánsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Páll Pétursson, Alexander Stefánsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Guðni Ágústsson og Jóhann Einvarðsson.
    Till. sem ég mæli hér fyrir hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta í samvinnu við samtök hestamanna og sveitarfélaga gera reiðvegaáætlun. Áætlun þessi skal gerð til fjögurra ára í senn.
    Samgönguráðherra skal í því skyni skipa nefnd er hafi það hlutverk að vinna reiðvegaáætlun og endurskoða hana reglulega.
    Í starfi sínu taki nefndin meðal annars mið af eftirfarandi atriðum:
    1. Gera skal reiðvegaáætlun til fjögurra ára í senn og forgangsraða skal verkefnum.
    2. Hafa skal nána samvinnu við m.a. Landssamband hestamannafélaga, samtök sveitarfélaga, Vegagerð ríkisins, Náttúruverndarráð, Landgræðslu, Skógrækt ríkisins, skipulagsstjórn og Ferðaþjónustu bænda sem og einstök sveitarfélög og landeigendur.
    3. Bæta skal aðstöðu hestamanna á þjóðvegum og haga þannig að öryggi gegn slysum verði sem mest.
    4. Viðurkenna skal í raun umferð ríðandi manna sem hluta af samgöngum landsmanna.
    5. Friðlýsa þarf fornar reiðleiðir og halda þeim við.
    6. Við mat umferðar á hestum skal höfð hliðsjón af hesthúsahverfum, skeiðvöllum, hrossabúum, hagagöngu, staðsetningu gisti- og ferðamannastaða og
veitinga- og útivistarstaða.
    7. Hafa skal hlið á girðingum þar sem alfaraleiðir og girðingar skerast.
    8. Tryggja skal vernd svæða og leiða sem hafa gildi vegna náttúrufegurðar og skilyrða sem gera þau eftirsóknarverð sem reiðland.
    9. Umferð ríðandi manna má eigi spilla ræktuðu landi, túnum, görðum eða skógrækt og ekki ónáða búfé.``
    Þáltill. þessi er flutt samhliða tveimur frv. til laga. Annað frv. er um breytingu á vegalögum, og hefur þegar verið mælt fyrir því hér á þingi og því vísað til samgn. Þar er kveðið svo á að Vegagerð ríkisins skuli sjá um gerð og viðhald reiðvega samkvæmt sérstakri reiðvegaáætlun sem hér er síðan mælt fyrir með þáltill.
    Hitt frv. fjallar um sérstakt hóffjaðragjald sem greiða skal af hóffjöðrum og notað skal til reiðvegagerðar, en ríkissjóður leggi jafnframt fram jafnvirði hóffjaðragjaldsins til slíkrar reiðvegagerðar.
    Það sem hér er um að ræða er í fyrsta lagi að tekin eru af öll tvímæli og Vegagerð ríkisins falið alveg skýrt að sjá um gerð og viðhald reiðvega. Það hefur enginn einn aðili haft á höndum hingað til og Vegagerðin er af ýmsum ástæðum mjög vel fallin til þess.

    Í öðru lagi er aflað fjár til reiðvegagerðar á móti því sem ríkið leggur til enda eðlilegt að hestamenn greiði að talsverðum hluta sjálfir fyrir gerð reiðvega.
    Í þriðja lagi er síðan sú till. til þál. sem hér er flutt um reiðvegaáætlun sem gerð reiðvega verði unnin eftir og þar skiptir meginmáli auðvitað forgangsröðun.
    Þessi till. hefur það hlutverk að fela samgrh. að vinna í samvinnu við samtök hestamanna og sveitarfélaga að gerð reiðvegaáætlunar og forgangsröð verkefna en eins og kunnugt er nýtur hestamennska sívaxandi vinsælda og hestaeign fer vaxandi. Því verður ekki hjá því komist að taka tillit til ríðandi manna í umferðinni en aukin bílaumferð á þjóðvegum landsins gerir nauðsynlegt að það sé gert með skipulegum hætti.
    Árið 1982 var gert samkomulag milli Landssambands hestamannafélaga og Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega. Það samkomulag er fylgiskjal með frv. um breytingu á vegalögum sem ég hef lagt hér fram í þinginu og mælt fyrir. Reynsla af þessu samkomulagi hefur ekki orðið nægilega góð og nauðsynlegt er að skýra málin frekar og koma þeim í fastara horf. Bæði er að fé til gerðar reiðvega hefur verið mjög af skornum skammti sem og að nauðsynlegt er að kveða skýrar á í lögum um hver beri veg og vanda af reiðvegagerð, hvernig fjár sé aflað til hennar og hverjir vinni áætlun um reiðvegagerð og ákveði forgang verkefna.
    Óhjákvæmilegt er að umferð ríðandi manna verði í raun viðurkennd sem hluti af samgöngum landsmanna. Til þess að þetta sé unnt verður að taka tillit til umferðar ríðandi manna við skipulagningu vegakerfis landsins. Sérstaklega þarf að hafa hliðsjón af staðsetningu hesthúsahverfa, skeiðvalla, hrossabúa, hagagöngu, gisti- og veitingastaða og útivistar- og ferðamannastaða.
    Mikilvægt er einnig að friðlýsa fornar reiðleiðir og halda þeim við. Með þeim hætti er varðveittur ákveðinn þáttur í menningarsögu landsins. Mikilvægt
er í þessu sambandi að tryggja að gróður spillist ekki og sjá til þess að saman geti farið vernd og notagildi. Hestamennska og hestaíþróttir eru sem fyrr segir mjög vaxandi. Íslenski hesturinn er í auknum mæli orðinn útflutningsvara en jafnframt koma erlendir ferðamenn hingað í vaxandi mæli til hestamannamóta og ferða á hestum. Fram hjá þeirri staðreynd geta Íslendingar ekki litið og þurfa að bregðast rétt við enda getur hesturinn einmitt orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu ferðamannaiðnaðar í landinu í nánustu framtíð. Í því sambandi er auðvitað mikið starf óunnið og margt sem þarf að hafa í huga. Eigendur veitingastaða þurfa víða að gera hestamönnum kleift að njóta þeirrar þjónustu sem þeir hafa á boðstólum. Til þess þurfa þeir að koma upp góðri hrossarétt, vel mölborinni og með skjólgirðingu sem er t.d. 1 1 / 2 metri á hæð. Aðstaða þarf að vera til að brynna hestunum og æskilegt að hey geti verið til sölu. Við gististaði, tjaldstæði og orlofsbúðir þarf að hafa aðstöðu til hagbeitar, þar þurfa að vera hrossaréttir og geymslur fyrir reiðtygi.

    Ferðaþjónusta bænda þarf að geta veitt hestamönnum fyrirgreiðslu af ýmsu tagi, ekki aðeins leigt mönnum hross heldur einnig haft hagbeit til sölu. Sveitarstjórnir og upprekstrarfélög eiga mörg góða skála á fjöllum, skála sem nýta mætti betur og leigja ferðafólki og gætu fallið vel inn í ferðir ríðandi manna um landið. Þannig mætti hugsa sér eins konar net náttstaða á hálendinu en hey þyrfti að vera til sölu á sem flestum stöðum svo að gróður spillist ekki.
    Við gerð reiðvega þarf að hafa í huga að vegir, sem hægt er að fara allt árið, eru nauðsynlegir í nágrenni hesthúsabyggða. Slíkir vegir eru eðlilegt viðfangsefni viðkomandi sveitarfélaga, hestamanna og Vegagerðar. Talsvert aðrar kröfur þarf að gera til slíkra vega en þeirra sem aðeins eru notaðir stuttan tíma á ári vegna þess að umferð getur orðið mikil á takmörkuðu svæði vetur og vor þegar blautt er um. Slíkir vegir þurfa að falla vel inn í skipulag en gera má ráð fyrir að mest álag sé á þessa vegi næst hesthúsunum, 5--10 km umhverfis þau, en fjær dreifist álagið verulega.
    Vel má hugsa sér að reiðvegir í þéttbýli geti verið meðfram þjóðvegum eða lagðir sérstaklega um útivistarsvæði, en áherslu verður að leggja á að friða alla reiðvegi fyrir umferð vélknúinna farartækja og kveða þarf skýrt á um umferðarrétt með merkingum þar sem reiðmenn þurfa að fara þvert á veg. Víða eru gömlu malarvegirnir ágætir reiðvegir þegar þeir eru opnir. Við gerð reiðvega þarf sérstaklega að gera ráð fyrir áningarstöðum, helst með því móti að víkja megi spölkorn frá vegi.
    Fskj. með þessari þáltill. er þáltill. sem flutt var árið 1986 af þingmönnunum Páli Péturssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni þar sem var farið fram á að Alþingi ályktaði að ríkisstjórnin skipaði nefnd er gerði áætlun um reiðvegagerð.
    Ég held að hér sé hreyft mjög nauðsynlegu máli og í heild mynda þessi þrjú mál samstöðu og þau þurfa að fara saman í gegnum þingið til þess að full not séu af.
    Ég hef orðið var við að hestamenn víða um land hafa mikinn áhuga á þessu máli, að einmitt reiðvegagerð verði komið í skipulagt og fast horf. Ég vil nefna það, virðulegur forseti, að til að mynda hefur mér borist skýrsla frá ferðanefnd Landssambands hestamannafélaga, sem formaður ferðanefndarinnar, Ólafur B. Schram, sendi mér, þar sem nokkuð er fjallað um þessi mál. Ég gríp hér stutt ofan í þá skýrslu, með leyfi forseta, en ferðanefnd Landssambands hestamanna hefur nú gefið út reiðvegakort og lýsingar á reiðleiðum yfir landshlutana Mið-Vesturland og Mið-Ísland. Tilgangur þessarar útgáfu er tvíþættur, annars vegar að vera hjálpargagn ferðamanna við skipulagningu ferðalaga og hins vegar liður í heildarskipulagningu reiðvegakerfis um landið allt.
    Stuttu síðar segir svo í þessari skýrslu, með leyfi forseta:
    ,,Sú aukning sem orðið hefur á vinsældum hestaíþróttarinnar hefur m.a. komið fram í mikilli

aukningu sumarferða. Umferð ríðandi fólks um byggðir og óbyggðir landsins hefur ekki farið fram hjá neinum og er það eitt af hlutverkum Landssambands hestamanna að hafa forustu um skipulagningu og stjórn þeirra mála er snúa að aðbúnaði og aðstöðu fyrir ferðafólk.``
    Það er alveg ljóst að umferð ríðandi manna fer stöðugt vaxandi og þessi mál verður að taka föstum tökum. Ég vona því að Alþingi Íslendinga taki þessar tillögur til afgreiðslu og legg til, hæstv. forseti, að að lokinni umræðu um þetta mál verði till. vísað til allshn.