Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Mér finnst ástæða til að þakka hv. félmn. fyrir góða afgreiðslu á þessu máli. Um leið minni ég á að annað frv. þessu máli tengt liggur fyrir heilbr.- og trn. Ed. og fjallar í raun og veru um sama efni en þar er verið að gera tilraun til að færa undir lög um heilbrigðisþjónustu einmitt þennan sama þátt, þ.e. að á þeirra verkefnaskrá séu einnig slysaforvarnir eða slysavarnir. Ég vil um leið og ég ítreka þakkir mínar fyrir góða afgreiðslu á þessu máli vænta þess að hitt frv. fái jafnframt góða afgreiðslu í hv. heilbr.- og trn. Ed. en hv. 3. þm. Norðurl. v. sem er formaður þeirrar nefndar hlustar á orð mín.