Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð út af því sem fram kom hjá hv. 6. þm. Reykv. Það er vissulega rétt að það er sjálfsagt þörf á ítarlegri og róttækari endurskoðun á lögum um lyfjadreifingu heldur en hér er gert ráð fyrir, hér er aðeins um litla lagfæringu að ræða. Eins og fram kom hjá hv. þm. hefur kostnaður við lyfjanotkun farið vaxandi í landinu á undanförnum árum. Þó fer það svolítið eftir því hvernig það er skoðað og hvaða sjónarmið liggja þar að baki. Vissulega hafa komið fram ný lyf sem hafa verið dýr en þau hafa þá væntanlega dregið úr kostnaði á öðrum sviðum, t.d. við sjúkrahúslegu og við aðgerðir, sem ef til vill og vonandi eru ónauðsynlegar ef hægt er að lækna viðkomandi sjúklinga með nýjum lyfjum og fyrir því eru auðvitað dæmi.
En við höfum nú að undanförnu verið að vinna að því að leita leiða til að draga úr þessum kostnaði. Heilbrigðisyfirvöld hafa nýlega fengið mjög ítarlega skýrslu frá nefnd sem skoðaði þessa þætti og vann við það í um það bil þrjú ár. Sérstök starfsnefnd á vegum ráðuneytisins er þessar vikurnar að vinna úr þeim tillögum sem þar komu fram. Dæmi um það eru þær hugmyndir sem hafa verið til umræðu í þjóðfélaginu að undanförnu, t.d. það að ávísa á ódýrari lyf með sama virka efninu eins og við erum að reyna að ná fram. Það er hluti af þeim tillögum sem fram koma í fyrrgreindu nefndaráliti og margt fleira er þar til skoðunar. Eins og er hefur þessi starfshópur sem vinnur á vegum ráðuneytisins ekki lagt til lagabreytingar og telur að margt megi færa til betri vegar án þess, en ekki er ólíklegt að til þess þurfi þó að koma á síðari stigum.