Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Frv. það sem hér liggur frammi um breytingu á lögum nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, er samið í samráði við stjórn Hollustuverndar ríkisins og er tilgangur frv. sá að Hollustuvernd ríkisins búi yfir sömu ráðum til þess að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar og heilbrigðisnefndir búa yfir í þeim tilvikum þar sem Hollustuvernd ríkisins fer með það sem kallað hefur verið beint eftirlit.
    Samkvæmt lögum nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem að grunni til eru frá 1981, er heilbrigðiseftirlit hér á landi í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna og starfa heilbrigðisfulltrúar sem framkvæmdaaðilar heilbrigðisnefndanna og eru starfsmenn sveitarfélaganna. Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna er ætlað að hafa með að gera það sem kallað hefur verið frumheilbrigðiseftirlit eða beint eftirlit. Þetta eftirlit er því rekið á kostnað og ábyrgð sveitarfélaganna með nokkrum undantekningum. Samkvæmt 2. tölul. 17. gr. laganna er Hollustuvernd ríkisins ætlað beint eftirlit með innflutningi á matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum. Enn fremur er gert ráð fyrir því í 4. tölul. 13. gr. laganna að Hollustuvernd ríkisins geti samkvæmt ákvörðun ráðherra, náist samkomulag þar um við hlutaðeigandi sveitarfélög, tekið að sér beint eftirlit og hefur þessu verið þannig háttað í reynd að Hollustuvernd ríkisins fer með beint eftirlit með ýmiss konar mengandi starfsemi í samræmi við mengunarvarnareglugerð. Þar sem heilbrigðisnefndir fara með eftirlitið geta þær samkvæmt lögunum beitt ýmsum ráðstöfunum til þess að knýja á um framkvæmdir eða til þess að viðkomandi starfsemi verði stöðvuð ef ekki er orðið við fyrirmælum, sbr. nánar 27. gr. laganna. Í þeim tilvikum þar sem Hollustuvernd ríkisins fer með eftirlitið, eins og gildir um innflutningseftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum og eftirlit með mengandi starfsemi, er engum slíkum lagafyrirmælum til að dreifa þannig að heilbrigðisnefndir hafa þurft að grípa til ráðstafana vegna eftirlitsins sem Hollustuvernd ríkisins er falið.
    Þetta er að mati ráðuneytisins ekki eðlileg ráðstöfun þar sem hafa verður í huga að hlutaðeigandi sveitarfélög hljóta að bera ábyrgð á aðgerðum sem þau grípa til í þessu skyni án þess þó að starfsmenn þeirra, þ.e.
heilbrigðisnefndirnar eða heilbrigðisfulltrúarnir, hafi með málið að gera að öðru leyti. Þannig fer ekki saman raunveruleg ákvarðanataka og framkvæmd ráðstöfunarinnar. Hefur þetta m.a. leitt til þess að erfiðlega hefur gengið að fá heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna til þess að grípa til ráðstafana sem hugsanlega kynnu að baka þeim fjárhagsábyrgð án þess að geta dæmt um málið á fyrri stigum. Það er því álit ráðuneytisins og stjórnar Hollustuverndar ríkisins að eðlilegt sé að sú stofnun búi yfir sömu

ráðum til þess að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar og heilbrigðisnefndirnar búa yfir fari stofnunin með þetta beina eftirlit. Slíkt eftirlit heyrir til undantekninga, eins og fram hefur komið, en getur hins vegar varðað mjög mikilvæg atriði, atriði sem að öðru jöfnu gætu haft alvarlegri afleiðingar, sé ekki við brugðist, en margt af því sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hefur með að gera. Í þessu tilviki má benda á eftirlit Hollustuverndar ríkisins með mengandi starfsemi eins og t.d. stóriðju. Þeir þættir sem Hollustuvernd ríkisins hefur með að gera í formi frumeftirlits eru þekktir og sé ætlunin að breyta þeim eða auka við þarf til sérstakt samkomulag við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna, sbr. nánar 4. tölul. 13. gr. laganna eins og áður var til vitnað og ætti því ekki að verða hætta á árekstrum við eftirlit sveitarfélaganna um framkvæmdina.
    Hæstv. forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um lagafrv. þetta því að það er í eðli sínu ákaflega skýrt og kveður á um hluti sem hljóta að teljast eðlilegir með hliðsjón af því að haldið skuli út heildstæðu heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirliti. Ég legg því til að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.