Lyfjafræðslunefnd
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Nefndin hefur fjallað um frv. og fengið um það umsagnir frá Apótekarafélagi Íslands, Lyfjaeftirliti ríkisins, lyfjafræðideild Háskóla Íslands, Lyfjafræðingafélagi Íslands og lyfjanefnd.
    Nefndin getur fallist á þá hugsun sem býr að baki tillögunni, um að efla lyfjafræðslu, en telur hins vegar að ná megi árangri í lyfjafræðslustarfi án þess að stofna sérstaka lyfjafræðslunefnd og telur eðlilegra, einfaldara og sennilega mun ódýrara að slíkt fræðslustarf verði á vegum einhverrar stofnunar sem þegar starfar á sviði lyfjamála. Nefndin leggur því til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Undir þetta nefndarálit rita allir nefndarmenn, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Geir H. Haarde, Geir Gunnarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnhildur Helgadóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson.