Áfengisfræðsla
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Nefndin hefur einnig fjallað um þetta frv. og fengið um það umsagnir frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, áfengisvarnaráði, heilbr.- og trmrn. og lögreglustjóranum í Reykjavík.
    Í ljósi þess að frv. fjallar um efni sem áfengisvarnaráði er falið að annast og Alþingi hefur jafnan kosið í það ráð menn með þekkingu á áfengisvarnamálum leggur nefndin til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Undir þetta rita allir nefndarmenn, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Geir H. Haarde, Geir Gunnarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnhildur Helgadóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson.