Meðferð opinberra mála
Þriðjudaginn 06. mars 1990


     Páll Pétursson:
    Herra forseti. Eins og ég sagði áðan er hér um fylgifrv. að ræða með frv. því sem er 297. mál þingsins. Þetta frv. gerir ráð fyrir því að mál samkvæmt lögum verði rekin að hætti opinberra mála skv. lögum nr. 74/1974. Rétt þykir að kveða einnig á um það í þeim lögum. Gildistökuákvæði er hið sama og í frv. til laga um tímabundinn atvinnurekstur og bann. Eins og ég sagði áðan þá legg ég til að þessu máli verði vísað til allshn.