Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Flm. þess frv. sem hér er til umfjöllunar hafa með flutningi þess vakið athygli á ákveðnu vandamáli sem við er að glíma hér í þjóðfélaginu. Það lýtur að því að menn standa ekki við skuldbindingar sínar og svíkja það sem þeir hafa lofað og stofna hugsanlega æ ofan í æ til starfsemi sem verður síðan gjaldþrota og lánardrottnar tapa peningum. Ég hygg að hv. 2. flm. hafi lýst þessu vandamáli nokkuð réttilega hér í upphafi máls síns en ég hygg engu að síður að það frv. sem nú er til umfjöllunar leysi ekki þennan vanda sem hér er við að glíma og sé reyndar að mörgu leyti mjög vafasamt.
    Það er engin ástæða til að hafa neina samúð með þeim aðilum sem hv. 2. flm. gerði hér að umtalsefni og sem hann vill ná í skottið á með þessu frv. Það vilja auðvitað allir. En ég hygg að um slíka menn gildi í flestum tilfellum að núgildandi refsiákvæðum laga hafi ekki verið beitt, þeir hafi ekki hlotið dóma eða verið fundnir sekir um refsivert athæfi að núgildandi lögum. Ef svo væri efast ég um að viðkomandi gæti haldið áfram uppteknum hætti, eða vita flm. um einhverja slíka aðila sem sætt hafa refsiábyrgð og síðan stofnað ný fyrirtæki með þeim hætti sem frsm. lýsti?
    Ég er sannfærður um það, herra forseti, að flm. þessa máls gengur gott eitt til en hér er lagt til að farið sé inn á nýja leið í refsingum og tekin upp áður óþekkt viðurlög sem felast í því að svipta menn rétti til að stunda starfsemi sem öllum öðrum er heimilt að stunda án sérstakra leyfa. Og það vill nú þannig til að atvinnufrelsið á Íslandi er tryggt með ákvæðum í stjórnarskrá. En hér er sem sagt stungið upp á alveg nýrri refsileið sem ekki
þekkist í íslenskum refsirétti nú þar sem aðeins er gert ráð fyrir sektum og refsivist sem viðurlögum við refsiverðu athæfi.
    Þannig er, herra forseti, að samkvæmt gildandi lögum þarf ekki almennt séð sérstök leyfi til að stofna til atvinnurekstrar, enda getur verið afar erfitt að skilgreina nákvæmlega hvað í atvinnurekstri felst. Reyndar er það þannig að í gildandi lögum er ekki annað um það hvað sé atvinnurekstur en skilgreiningar skattalaganna og þar er það auðvitað þannig að öll einyrkjastarfsemi telst atvinnurekstur. Þarf ég ekki að fara nánar út í það eða nefna dæmi um slíka starfsemi. En í frv. er gert ráð fyrir, herra forseti, að dæma megi menn í svokallað atvinnurekstrarbann í 3--5 ár hafi þeir ,,gróflega brugðist skyldum sínum í eigin atvinnurekstri eða í atvinnurekstri lögaðila sem þeir eru í forsvari fyrir``, eins og segir í frv. Í slíku banni felst m.a. að viðkomandi yrði óheimilt að stunda sjálfstæðan atvinnurekstur eða vera í stjórn eða varastjórn félags með fjárhagsleg markmið. Ég verð að segja það, herra forseti, að ég tel mjög varhugavert að ætla að banna einstökum mönnum að hefja rekstur í atvinnuskyni jafnvel þótt þeir hafi misstigið sig í atvinnurekstri fyrr á lífsleiðinni. Það gegnir auðvitað allt öðru máli um sérstök leyfi eða

stjórnvaldsheimildir eða starfréttindi sem hið opinbera veitir mönnum, svo sem verslunarleyfi, lækningaleyfi eða lögmannsréttindi og fleira þess háttar sem menn kannast við. Það getur verið eðlilegt og auðvitað óhjákvæmilegt oft og tíðum að svipta menn slíkum leyfum hafi þeir brugðist þeim skyldum eða kröfum sem að baki slíkum leyfisveitingum liggja, enda er gert ráð fyrir því í gildandi lögum.
    Ég vil til viðbótar benda á, herra forseti, að með slíku banni sem hér er lagt til gæti í mörgum tilfellum staðan orðið sú að með því að dæma menn í slíkt bann væri í raun verið að skerða möguleika þeirra sem lent hafa í erfiðleikum, manna sem féllu undir þessi ákvæði, skerða möguleika þeirra til að koma undir sig fótunum á nýjan leik og gerast borgunarmenn fyrir tjóni sem þeir hafa valdið öðrum. En vissulega hlýtur það að vera markmið að mönnum sé gert kleift að standa í skilum en ekki lagðar óeðlilegar hömlur á möguleika þeirra til að afla tekna til þess að borga tjón sem þeir kunna að hafa valdið.
    Ég tel enn fremur, herra forseti, að með því að setja ákvæði sem þessi í lög sé verið að veita fólki falska vernd, gervivernd, gegn þeim sem brjóta af sér í atvinnurekstri. Það er enginn skyldugur til þess að stunda lánsviðskipti við aðra aðila og allra síst aðila sem hann ekki treystir. Og það verður ævinlega svo í lánsviðskiptum að þeim fylgir einhver áhætta og þá áhættu þurfa menn ekki að taka nema þeim sýnist svo. Í gildandi lögum, sem hv. frsm. vitnaði títt til, eins og hegningarlögum, skatta- og bókhaldslögum er að finna margs konar refsiákvæði sem eiga við um brot á þessum lögum og margháttað refsivert athæfi annað. Ég tel að brotalömin í núverandi kerfi sé framkvæmd þessara ákvæða og veikleikar í því eftirlits- og rannsóknakerfi sem fyrir er. Ég vil benda á að samkvæmt þessu frv. er gert ráð fyrir því að sömu aðilar annist framkvæmdina og eftirlitið og þeir sem það gera í núverandi eftirlitsrannsóknakerfi. Ég tel að ekkert bendi til þess að yfirvöld, þessi hin sömu, yrðu betur í stakk búin til að framfylgja lögum um atvinnurekstrarbann, ef sett yrðu, en núgildandi lagaákvæðum. Ég tel hins vegar eðlilegra að bregðast við því vandamáli sem hér er vissulega vakin athygli á með því að styrkja núverandi eftirlitsaðila, jafnvel að herða á þeim
refsiákvæðum sem fyrir eru og fylgja þeim fastar eftir. Ég tel að það sé eðlilegra en að taka upp það atvinnurekstrarbann sem lagt er til í frv. Með slíku frv. er að mínum dómi verið að fara inn á brautir sem hugsanlega sér ekki fyrir endann á.
    Það mætti nefna ýmis önnur ákvæði í þessu frv. sem koma mönnum, eða a.m.k. mér, sérkennilega fyrir sjónir. Ég sé t.d. ekki betur en í 3. gr. frv. sé verið að snúa við sönnunarbyrði aðila vegna þess að þar segir að dæma skuli menn sem framið hafi brot samkvæmt 2. gr nema þeir sýni fram á að þeir hafi hvorki vitað né mátt vita um ólögmætt athæfi, ólögmæta háttsemi.
    Það má benda á það að í 6. gr. segir að sá sem dæmdur hafi verið í atvinnurekstrarbann megi ekki

heldur taka að sér reglubundin verkefni í atvinnustarfsemi sams konar þeirri sem hann brást skyldum sínum í. Ég sé ekki betur en þetta þýði að aðilar með tiltekna sérþekkingu megi ekki taka að sér verkefni á því sviði samkvæmt ákvæðum þessa frv. Þetta þýðir það að menn sem hafa sérhæft sig í alls kyns einyrkjastarfsemi, það má t.d. nefna hárskera og aðra þá sem veita alls kyns persónulega þjónustu, sem kynnu að verða dæmdir í bann sem hér er verið að tala um mundu ekki mega stunda störf á sínu sérsviði eða taka að sér verkefni ýmiss konar sem tengjast fyrri atvinnustarfsemi viðkomandi eða er í sömu grein. Ég tel að þetta sé mjög sérkennilegt.
    Ég hyggst ekki, herra forseti, fjalla nánar um einstakar greinar. Ég vildi koma þessum almennu sjónarmiðum mínum hér að við þessa umræðu. Ég held að refsiréttur á Íslandi sé ekki svo illa á sig kominn að það þurfi að bæta við nýrri tegund refsinga eins og þeirri sem hér er lögð til. Ég held að málið sé miklu fremur það, eins og ég hef þegar sagt, að framfylgja gildandi ákvæðum og gera þá aðila í hinu opinbera kerfi sem því eiga að framfylgja þess megnuga þannig að aðilar, eins og þeir sem hv. frsm. ræddi hér um í upphafi síns máls, geti ekki leikið lausum hala í okkar samfélagi.