Páll Pétursson:
Herra forseti. Nú óttast ég að mér hafi orðið illa á í messunni því að þrír af mestu heilum þessarar stofnunar hafa greinilega misskilið ræðu mína og hef ég þá væntanlega ekki talað nógu skýrt því ótrúlegt þykir mér að jafnmiklir heiðursmenn vilji fara að gera sig hér að málsvörum svindlara og skjóta skildi fyrir þá. Ég tel það raunar fjarstæðu að jafnmiklir heiðursmenn og hér hafa verið að gagnrýna þetta frv. láti sér detta það í hug. Það hvarflar ábyggilega ekki að þeim að gerast málsvarar efnahagslegra síbrotamanna.
En til áréttingar því og til leiðréttingar á því sem ég kannski hef ekki sagt nógu skýrt í framsöguræðu minni þá langar mig til að lesa hérna tvær af fyrstu greinum frv.
1. gr. hljóðar svo: ,,Hvern þann, sem bregst gróflega`` --- ég endurtek --- ,,gróflega skyldum sínum í eigin atvinnurekstri eða í atvinnurekstri lögaðila sem hann er í forsvari fyrir, má með dómi útiloka frá frekari atvinnurekstri um tiltekinn tíma...``
2. gr. hljóðar svo, með leyfi forseta: ,,Maður skal teljast hafa brugðist skyldum sínum gróflega hafi hann í atvinnurekstrinum gerst sekur um:
a. brot gegn almennum hegningarlögum eða annað meiri háttar afbrot,
b. meiri háttar brot gegn lögum um opinber gjöld,
c. meiri háttar brot gegn lögum um bókhald,
d. önnur meiri háttar efnahagsbrot.
Við mat á því hvort brot telst meiri háttar skal til þess litið hvort misferli hefur verið kerfisbundið, lotið að verulegum peningaverðmætum eða verulegum hagnaði miðað við umfang atvinnurekstrar og þess hvort brot hefur haft í för með sér hættu á verulegu tjóni.
Einnig má dæma í atvinnurekstrarbann mann sem hefur í sjálfstæðum atvinnurekstri orðið gjaldþrota, enda hafi hann í atvinnurekstrinum gerst sekur um stórlega`` --- og ég endurtek --- ,,stórlega ámælisverða háttsemi gagnvart lánardrottnum sínum. Sama gegnir um einstaklinga sem hafa í störfum sínum sem forsvarsmenn lögaðila, er verða gjaldþrota, gerst sekir um stórlega ámælisverða háttsemi gagnvart lánardrottnum.``
Ég held að hv. þm. hefði verið í lófa lagið að lesa þetta úr þskj. ef ég hef ekki komið nógu skýrt orðum að hugsun minni í framsögu. Hér er sem sagt ekki verið að eltast við einhvern tittlingaskít, hér er verið að tala um að ná til manna sem kerfisbundið hagnast á misferli og sýna af sér stórlega ámælisverða háttsemi.
Það er út af fyrir sig kannski nokkuð til í þeim ótta hv. 17. þm. Reykv. að þetta frv. leysi ekki allan vandann né stöðvi til frambúðar meiri háttar efnahagsbrot en refsiákvæði núgildandi laga gera það ekki heldur. Þess sjáum við dæmi til og frá í þjóðfélaginu. Þetta mein er fyrir hendi og þetta mein hefur versnað stórlega á síðustu árum. Menn hafa fært sig upp á skaftið og iðulega eru það sömu mennirnir
sem ganga fyrirtæki úr fyrirtæki og tíðka það ekki bara að verða gjaldþrota því það getur hent bestu menn að vera ráðlausir og lenda í óhöppum og orðið gjaldþrota og það er ekki hugmyndin að vera neitt að níðast á þeim. Hugmyndin er að reyna að ná til manna sem með stórlega ámælisverðri háttsemi brjóta gróflega og kerfisbundið af sér og mér finnst nú ekki vera neitt óeðlilegt að reyna að stöðva þá. Það eru ákveðnir menn sem tíðka það --- án þess að nokkur hreyfi legg eða lið, menn bara sitja eftir með sárt ennið --- að eignast fyrirtæki eftir fyrirtæki sem þeim tekst að misfara með, viðskiptamönnum sínum til stórtjóns.
Ég er ekki að tala um menn sem misstíga sig, ég er ekki að tala um menn sem verður eitthvað lítils háttar á, ég er að tala um menn sem beinlínis viljandi brjóta gróflega af sér.
Hv. 17. þm. Reykv. var að undrast það að verið væri að telja það eftir, að það væri verið að skerða möguleika þessara manna til að afla sér tekna. Ég sé ekkert á móti því að skerða möguleika svindlara til þess að svindla meira. Hv. þm. talaði um að þetta frv., ef að lögum yrði, mundi veita falska vernd. Það getur verið dálítið til í því en ég fullyrði að núverandi 68. gr. hegningarlaganna veiti mönnum falska vernd vegna þess að þessir menn hafa ekki stoppað.
Varðandi ræðu sem hv. 2. þm. Vestf. flutti hér þá er hann lögvitur maður og frjór löggjafi en því miður þá féll hann í það, annaðhvort að snúa út úr fyrir mér, sem mér þykir líklegra því hann er svo skarpur að ég skil ekki í öðru en að þetta frv. hafi verið honum alveg morgunljóst. Og ég skil ekkert í honum að nefna þjóðkunnan athafnamann og brautryðjanda í íslensku atvinnulífi til þessarar sögu og hann meira að segja genginn til feðra sinna fyrir löngu. Ég lít svo á að sá maður hafi ekki brugðist gróflega skyldum sínum. Hann fór að vísu á hausinn en ég held að það sé ekki hægt að segja að hann hafi stundað misferli kerfisbundið. Ég vil ekki taka mér það í munn, alls ekki. Ég þekki að vísu ekki bókhald hans nákvæmlega en að hann hafi stundað misferli kerfisbundið finnst mér alveg fjarstæða að taka upp í sig.
Það er alls ekki meiningin að svipta menn atvinnurekstrarleyfi fyrir það að reka fyrirtæki með tapi, lenda í kreppu eða fara á hausinn. Og það er afar mikill misskilningur hjá hv. 2. þm. Vestf. ef hann heldur að svindlarar séu einir manna færir um að reka atvinnufyrirtæki, ef hann heldur að það séu ekki neinir eftir nema kjánar sem ekki verði tekin af atvinnurekstrarleyfi ef þetta verður að lögum. Ég fer að hafa stórkostlegar áhyggjur af viðskiptasiðferði þessa hv. þm. (Gripið fram í.) Já, það er nefnilega það. Svindlararnir hafa nefnilega gengið á það lagið að hagnýta sér einfeldningana og féfletta þá. Þess vegna erum við kannski komnir í þessa vondu stöðu.
Ég held að það sé misskilningur hjá skrifara deildarinnar, hv. 11. þm. Reykn., ef hann heldur að rétt sé að láta bankana eina um að gæta laga og réttar í landinu. Ég held að það hafi ekki neitt upp á sig að ætla þeim einum að gera það. Þeir eru að passa sig
og sín viðskipti, þeim tekst það nú reyndar ekki alltaf, ekki undantekningarlaust. Þeir reyna þá að vísu að bjarga sér með því að hækka þjónustugjöld sín þannig að þeir geti haldið áfram að þenjast út, en ég held að þeim sé ekki treystandi einum fyrir þessu, að gæta laga og réttar.
Þetta frv., þó að lögum verði, sem ég vona sannarlega, verður ekki til þess að lama atvinnulífið í landinu. Frv. er flutt til þess að stöðva efnahagslega síbrotamenn, menn sem kerfisbundið hafa komist upp með stórafbrot á afbrot ofan. Ég hef horft upp á blásaklaust fólk verða fórnarlömb stórsvindlara sem það í góðri trú hafði hversdagsleg viðskipti við. Ég þekki fólk sem hefur beðið svo verulegan efnahagslegan hnekki að það er a.m.k. ekki búið að rétta sig af enn þá, fyrir það að lenda í að gera viðskipti við svona herra. Og þar af leiðir að ég held að þessir ágætu alþingismenn hafi misskilið þeta mál. Ég vil ekki gera þeim það að þeir séu að skjóta skildi fyrir skúrka, þeir hafi misskilið þetta og við nánari athugun komist þeir að raun um að þetta er réttmætt mál. Það getur vel verið að á því séu einhverjir tæknilegir annmarkar. Ég er manna fúsastur til viðræðu um að breyta frv. á einhvern hátt. Ef menn koma með betri lausnir er ég tilbúinn að skoða þær. Ég hef nú þegar lagt til að frv. verði vísað til hv. allshn. þar sem situr valinn maður í hverju rúmi og ég veit að málið mun hljóta þar hina bestu athugun og ég er ekki vitund hræddur um að Alþingi komi því ekki í þann búning að þetta verði til bóta á íslenskri löggjöf og viðskiptasiðferði í landinu.