Skipan prestakalla
Miðvikudaginn 07. mars 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. sem flutt er á þskj. 678. Frv. það sem hér er lagt fram fjallar um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands.
    Áður en ég rek efni frv. vil ég víkja nokkrum orðum að undirbúningi þess. Upphaflega var hér um að ræða tvö frumvörp. Annað var frv. til laga um starfsmenn þjóðkirkju Íslands. Það frv. var lagt fram á 108. löggjafarþingi 1985--1986 en hlaut ekki afgreiðslu. Haustið 1988 skilaði nefnd er skipuð var til þess að endurskoða lög um skipan prestakalla og prófastsdæma frv. til laga um skipan prestakalla og prófastsdæma. Bæði frumvörpin fjölluðu um náskylt efni, þ.e. um stjórnskipan kirkjunnar og þá starfsmenn er gegna eiga störfum í þágu hennar. Að athuguðu máli þótti rétt að steypa þessum frumvörpum saman sem hér eru nú til umfjöllunar.
    Frv. hefur komið til umfjöllunar á kirkjuþingi, kirkjuráði og prestastefnu. Það hefur verið sent til umsagnar til prófasta landsins er hafa lagt það fyrir á fundum heima í héruðum. Frv. hefur tekið nokkrum breytingum frá því að það var lagt fyrir kirkjuþing á haustdögum 1988. Hér er um nokkuð viðamikil mál að ræða fyrir þjóðkirkjuna er snertir stjórnsýslulega uppbyggingu hennar, starf hennar í heild og því mikilvægt að vandað sé til þeirrar lagasetningar.
    Ég vil í stuttu máli gera grein fyrir þeim meginbreytingum sem frv. hefur í för með sér. Í I. kafla frv. er gerð grein fyrir skipan prestakalla og prófastsdæma. Prófastsdæmi landsins eru nú 15 en skv. frv. verða þau 16 talsins. Gert er ráð fyrir að Reykjavíkurprófastsdæmi sem er langstærsta prófastsdæmi landsins verði skipt í tvö prófastsdæmi. Skv. gildandi lögum er prestaköllum skipað með lögum nema í Reykjavíkurprófastsdæmi. Í frv. er gert ráð fyrir að sama skipan gildi í Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæmum og gilt hefur í Reykjavíkurprófastsdæmi að ráðherra ákveði skipun prestakalla með reglugerð. Með þessu móti er hægara að breyta prestakallaskipuninni og laga hana að byggðaþróuninni en utan Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæmis þótti þó ekki ástæða til að breyta frá gildandi lögum að ákveða prestakallaskipanina með lögum. Frv. gerir ráð fyrir að utan Reykjavíkur- og Reykjanessvæðisins verði sex prestaköll lögð niður en jafnframt er gert ráð fyrir að fjögur ný verði tekin upp. Mörkum milli prestakalla er í nokkrum tilfellum breytt. Geta má þess að nefnd sú er samdi frv. í upphafi lagði til að fækkunin yrði í heild um sex prestaköll.
    Breytingar á skipun prestakalla er í grófum dráttum þessi: Í Skaftafellsprófastsdæmi fækkar prestaköllum um eitt þar sem Ásaprestakall sameinast Klausturprestakalli. Í Rangárvallaprófastsdæmi fækkar prestaköllum sömuleiðis um eitt þar sem Kirkjuhvolsprestakall er lagt niður og sóknir þess færðar undir Fellsmúla- og Oddaprestakall. Einnig er sú breyting gerð að Stórólfshvolssókn er færð undir

Breiðabólstaðarprestakall. Í Árnesprófastsdæmi er eitt prestakall lagt niður, Stóra-Núpsprestakall, en tvö ný stofnuð, Þorlákshafnar- og Hraungerðisprestakall. Jafnframt er Stóra-Núpssókn færð undir Hrunaprestakall. Í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi er eitt prestakall lagt niður, Söðulholtsprestakall, en eitt stofnað, Ingjaldshólsprestakall, með prestssetur á Hellissandi. Í Barðastrandarprófastsdæmi er Sauðlauksprestakall lagt niður en stofnað nýtt prestakall, Tálknafjarðarprestakall. Breiðabólsstaðarprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi er lagt niður en upp tekið Hvammstangaprestakall er tekur yfir Hvammstangasókn og sóknir er heyrðu undir Breiðabólsstaðarprestakall að undanskildri Víðidalstungusókn sem færð er undir Melstaðarprestakall. Í Skagafjarðarprófastsdæmi eru gerðar tillögur um nokkrar breytingar á mörkum prestakalla. Jafnframt er gert ráð fyrir að prestur er situr á Mælifelli verði til aðstoðar vígslubiskupi á Hólum. Siglufjarðarprestakall er flutt frá Eyjafjarðarprófastsdæmi í Skagafjarðarprófastsdæmi. Miðgarðasókn í Grímsey færist frá Glerárprestakalli undir Akureyrarprestakall. Í Þingeyjarprófastsdæmi fækkar prestaköllum um eitt þar sem lagt er til að Háls- og Staðarfellsprestaköll sameinist og nefnist Ljósavatnsprestakall. Alls fækkar því prestaköllum yfir landið í heild um tvö.
    Skv. 3. gr. frv. er gert ráð fyrir að í hverju prestakalli verði aðeins einn sóknarprestur. Jafnframt er heimilt að ráða aðstoðarprest eða presta í mjög fjölmennum prestaköllum. Með þessari breytingu ætti að verða leyst úr vissum stjórnunarlegum árekstrum sem hafa einstaka sinnum komið upp í tvímenningsprestaköllum.
    Í 4. gr. og 6. gr. eru rýmkaðar heimildir ráðherra til að leggja niður prestakall fari íbúafjöldi niður fyrir 250 manns eða taka upp ný prestaköll ef nauðsyn krefur eða breyta mörkum prestakalla án þess að til þurfi að koma lagabreyting. Í 8. gr. eru ítarlegri ákvæði um prestssetur en eru í gildandi lögum um skipan prestakalla og prófastsdæma.
    Helstu nýmæli í II. kafla frv., er fjallar um sérþjónustuembætti, eru þau að ráðherra er heimilað að ráða sérstaka farpresta til starfa í einu eða fleiri
prófastsdæmum er annist forfalla- og aðstoðarþjónustu og annist tiltekin sérverkefni. Heimild þessi takmarkast að sjálfsögðu við þær fjárveitingar er fást hverju sinni. Líkur eru til þess að fyrst og fremst fjölmenn prófastsdæmi mundu nýta sér þennan möguleika. Sem nýmæli mætti nefna að frv. gerir ráð fyrir aukinni prestsþjónustu á sjúkrastofnunum.
    III. kafli frv. fjallar um embættisgengi presta. Helstu nýmæli í þeim kafla eru að ítarlegri skilyrði en nú gilda eru sett um skipun eða setningu í prestsembætti. Þar er m.a. kveðið á um skyldubundna þjálfun í a.m.k. fjóra mánuði áður en kandídatar hljóta vígslu. Skv. 17. gr. skal biskup gæta þess að eigi veljist aðrir til prestsþjónustu í þjóðkirkjunni en þeir sem til þess eru hæfir.
    IV. kafli frv. fjallar um ýmis ákvæði um presta og

starfsskyldur þeirra. Hér er um nokkur nýmæli að ræða sem að nokkru hafa mótast af framkvæmd. Lögð er sérstök áhersla á samstarf presta innan hvers prófastsdæmis. Er það í samræmi við þróun síðari ára.
    V. kaflinn fjallar um prófasta. Þessi kafli er allítarleg upptalning á verkefnum prófasts og réttarstöðu. Að verulegu leyti er hér verið að fjalla um verkefni sem þeir annast nú þegar.
    Í VI. og VII. kafla frv. er fjallað um embætti biskups Íslands og embætti vígslubiskupa. Í áðurgreindu frv. til laga um starfsmenn þjóðkirkju Íslands var gert ráð fyrir að landinu yrði skipt í þrjú nokkurn veginn jafnsett biskupsdæmi. Hér er lagt til að landið verði áfram eitt biskupsdæmi. Hins vegar verði embætti vígslubiskupa landsins, sem eru tveir skv. frv., efld. Með þessari tilhögun verða vígslubiskuparnir með vissum hætti aðstoðarmenn biskups er geta sinnt ýmsum samskiptum við söfnuði og presta landsins. Skv. 42. gr. er gert ráð fyrir að þeir sitji á hinum fornu biskupsstólum í Skálholti og á Hólum. Jafnframt er gert ráð fyrir að þeir verði sóknarprestar er þjóni Skálholtsprestakalli og Hólaprestakalli.
    Skv. 42. gr. er gert ráð fyrir að vígslubiskupi í Skálholti verði ráðinn aðstoðarprestur en Mælifellsprestur verði aðstoðarprestur vígslubiskups á Hólum. Ekki er gert ráð fyrir að ráða vígslubiskupi annað starfsfólk.
    Þótt hér sé gengið skemmra en frv. um starfsmenn þjóðkirkjunnar gerði ráð fyrir er komið að nokkru til móts við sjónarmið þeirra sem vildu efla biskupsþjónustu í landinu. Þessi tilhögun gerir einnig ráð fyrir að síðar geti sú breyting orðið að landinu verði skipt í þrjú biskupsdæmi ef reynslan sýnir að það sé nauðsynlegt. Einnig má benda á að breyting þessi hefur tiltölulega lítinn aukakostnað í för með sér.
    Í gildandi lögum eru sárafá ákvæði um embætti biskups. Ákvæðin um biskup eða biskupsembættið eru að verulegu leyti í samræmi við þá lagaframkvæmd sem í gildi hefur verið undanfarin ár. Þess má geta að nýlega hefur farið fram endurskipulagning á starfsskipulagi Biskupsstofu. Stofnuð hefur verið fræðslu- og þjónustudeild og ráðinn hefur verið skrifstofustjóri er annast m.a. fjármálastjórn. Frv. ýtir undir þá þróun að efla biskupsembætti en jafnframt eru efld tengsl biskupsembættisins við presta og söfnuði með aukinni þátttöku vígslubiskupanna.
    Rétt er að gera sér grein fyrir hvað sú breyting kostar er frv. felur í sér. Embætti vígslubiskupanna hafa tiltölulega lítinn aukakostnað í för með sér. Hólabiskup verður jafnframt sóknarprestur í Hólaprestakalli. Til aðstoðar honum verður sóknarprestur á Mælifelli. Á sama hátt verður Skálholtsbiskup jafnframt sóknarprestur í Skálholtsprestakalli en gert er ráð fyrir að ráða honum aðstoðarprest. Hér er um nýja stöðu að ræða sem er að sjálfsögðu háð samþykki fjárveitingavaldsins. Gera má ráð fyrir mjög lágum skrifstofukostnaði vígslubiskupa en eitthvað auknum ferðakostnaði.

    Eins og áður er á minnst er gert ráð fyrir að guðfræðikandídatar starfi í fjóra mánuði undir handleiðslu prests. Gengið er út frá að ráðherra setji reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. Hér verður um einhvern aukakostnað að ræða sem er launakostnaður guðfræðikandídata umræddan reynslutíma. Með góðri skipulagningu mundu starfskraftar guðfræðikandídata geta nýst í fjölmennum prestaköllum. Eins og fyrr greinir mun prestaköllum utan Reykjavíkur og Reykjanessvæðisins fækka um tvö.
    Frv. gerir ráð fyrir að heimilt verði að ráða farpresta til aðstoðar- og forfallaþjónustu í prófastsdæmum. Hér er um heimild að ræða sem háð er vilja fjárveitingavaldsins. Einnig má benda á að gert er ráð fyrir að núverandi farprestsembætti, sem eru tvö, verði lögð niður og gera má ráð fyrir einhverjum stofnkostnaði vegna breytinga á prestakallaskipaninni. Má þar einkum tilnefna byggingu prestsseturs í Hraungerðisprestakalli, Þorlákshafnarprestakalli, Ingjaldshólsprestakalli, Tálknafjarðarprestakalli og Hvammstangaprestakalli en á móti kemur væntanlega sala á sjö prestssetrum.
    Hæstv. forseti. Ég hef nú lokið við að gera grein fyrir einstökum atriðum þessa frv. en megineinkenni þess má draga saman í örfáum orðum með svofelldum hætti:
    1. Frv. miðar að því að færa löggjöf um kirkjuleg málefni til þarfa nútímans en jafnframt að hún búi yfir þeim sveigjanleika er dugi til nokkurrar frambúðar.
    2. Frv. byggir á samruna tveggja frumvarpa er verið hafa til umfjöllunar víða undanfarin ár og er nú byggt á samkomulagi mjög margra aðila er fjallað hafa um þessi efni.
    3. Frv. gerir ráð fyrir að Ísland verði áfram eitt biskupsdæmi.
    4. Frv. gerir ráð fyrir því að embætti vígslubiskupa verði efld og þeir sitji hin fornu biskupssetur að Skálholti og Hólum.
    5. Kostnaðarauki er samþykkt frv. hefði í för með sér er mjög óverulegur utan sá er ákveðinn yrði með samþykkt fjárlaga hverju sinni.
    Að svo mæltu legg ég til, hæstv. forseti, að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.