Leigubifreiðar
Fimmtudaginn 08. mars 1990


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég tel að það hafi verið fullkomlega eðlilegt að leggja fram þá fsp. sem hér er til umræðu. Því miður er ekki hægt að hafa langar umræður um þetta mál því menn hafa aðeins örstuttan tíma. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessa kennslustund í innskatti og útskatti sem ég held að flestir hafi heyrt reyndar áður, en beini til hans þeirri áskorun að hann sjái til þess að opinberar stofnanir, opinberir aðilar sem hafa hingað til skipt við þá aðila sem eru virðisaukaskattskyldir, haldi áfram að gera það og hverfi ekki yfir til leigubílanna sem eru til fólksflutninga vegna þess að opinberir aðilar eru að reyna að koma í veg fyrir það að borga þennan virðisaukaskatt sem lendir hjá hæstv. fjmrh. Það hefur talsvert verið undan þessu kvartað og mér finnst það vera lágmarksskylda okkar að sjá til þess að slíkt gerist og ég veit að hæstv. fjmrh., sem skilur þetta vandamál vel, mun bregðast vel við þessari áskorun og láta þau mál ganga þannig eftir að áfram verði stunduð viðskipti með eðlilegum hætti af hálfu opinberra aðila í þessum efnum.