Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh.:
,,Hvar skipar iðnaðarráðherra því í framkvæmdaröð að láta kanna hvort olía er í jörðu við Axarfjörð?``
Eins og hæstv. iðnrh. er kunnugt um hefur fundist þar jarðgas. Þegar lagt er mat á hvort gasið hafi inni að halda efni sem bendir til þess að olía sé í jörðu hefur m.a. verið metið hversu mikið af þungu gasi er um að ræða. Mér hefur verið sagt að ef hlutfallið af þungu gasi nái 5% sé almennt viðurkennt að hefja beri rannsóknir á því hvort um olíu sé að ræða. Mér hefur einnig verið sagt að þarna sé hlutfallið af þungu gasi e.t.v. nálægt því að vera 16%. Ég tel þess vegna að það sé mjög áhugavert verkefni hjá iðnrn. að láta rannsaka þetta og e.t.v. leita eftir samstarfsaðila sem hefði áhuga á slíkum rannsóknum.
Ég tel að þó að það sé kannski ríkt í huga okkar flestra að gera ekki ráð fyrir því að olía finnist á Íslandi þá sé ekkert sem segi að í þeim miklu setlögum sem eru norður af landinu og ná undir þetta svæði séu ekki olíulindir.
Hvatinn að þessari fsp. er þess vegna þær upplýsingar sem fyrir liggja og einnig hitt að mér finnst nauðsynlegt að iðnrh. móti stefnu í þessu máli og Alþingi geti metið það út frá slíkri stefnu við afgreiðslu fjárlaga næst hvernig taka beri á þessu.