Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegur forseti. Hv. 2. þm. Vestf. spyr mig hvar því sé skipað í framkvæmdaröð að láta kanna hvort olía sé í jörðu við Öxarfjörð. Þetta gefur mér tækifæri til að skýra frá þeim rannsóknum sem unnið hefur verið að undanfarin þrjú ár til að meta náttúruleg skilyrði til fiskeldis í Öxarfirði. Þær rannsóknir hafa leitt í ljós að allmikinn jarðhita er að finna undir söndunum fyrir botni fjarðarins. Háhitasvæði er við Bakkahlaup, lághitasvæði við Skógarlón og vísbendingar um annað lághitasvæði austarlega í Öxarfirði. Enn fremur rennur mikið ferskvatn til sjávar um sandana. Fiskeldisstöðvar á svæðinu nýta þessar auðlindir þegar að nokkru leyti.
    Í fyrra sumar sendi Orkustofnun ráðuneytinu greinargerð með hugmyndum um frekari rannsóknir á auðlindum í Öxarfirði. Í greinargerðinni segir m.a., með leyfi virðulegs forseta: ,,Auk jarðhitans hefur komið í ljós að heita vatninu fylgir örlítill vottur af lífrænu gasi sem frumrannsóknir sýna að sé hliðstætt því sem fylgir olíulindum í jörðu. Ekki er þar með sagt að umtalsverðar olíulindir sé að finna undir söndum Öxarfjarðar heldur einungis að þar sé til staðar a.m.k. hluti þeirra skilyrða sem þurfa að vera til að olíulindir geti myndast í jörðu.``
    Síðar í þessari sömu greinargerð segir:
    ,,Lífrænu gastegundirnar í Öxarfirði myndast vegna áhrifa jarðhita eða jafnvel kvikuinnskots á lífrænt efni í setlögum. Út frá almennum jarðfræðilegum forsendum er fremur ólíklegt að þar hafi myndast olía eða gas í vinnanlegu magni.``
    Þetta eru hinar fræðilegu útlistanir á gasfundinum í Öxarfirði. Hins vegar er það rétt hjá hv. fyrirspyrjanda og Orkustofnun er þeirrar skoðunar að ástæða sé til þess að fylgja þessum gasfundi eftir með frekari rannsóknum þar sem slíkar rannsóknir gætu haft mikla þýðingu fyrir mat á líkum þess að olíu
eða gas sé að finna í þeim þykku setlögum sem eru undan Norðurlandi og eru ein af jarðfræðilegum forsendum olíulinda hvar sem þær er að finna á jörðinni. Ég minni á boranir sem gerðar voru í Flatey á Skjálfanda fyrir nokkru.
    Í greinargerð Orkustofnunar er lagt til að gerð verði þriggja ára áætlun um rannsóknir á jarðhita, gasi og setlögum í Öxarfirði. Tillaga Orkustofnunar er að þessi áætlun taki til áranna 1990--1992. Í þessari áætlun er gert ráð fyrir að fyrsta árið verði framkvæmdar fimmþættar rannsóknir.
    Í fyrsta lagi, og það er mikilvægt, að rannsaka efnasamsetningu gassins ítarlegar en gert hefur verið.
    Í öðru lagi að greina sýni úr skeljalögum úr grunnum borholum en það er hugsanlegt að gasið eigi upptök sín í þeim.
    Í þriðja lagi að ljúka úrvinnslu jarðeðlisfræðilegra mælinga sem gerðar voru árið 1987 í samvinnu við vísindamenn í Sovétríkjunum.
    Í fjórða lagi að endurskoða úrvinnslu úr setþykktarmælingum sem gerðar voru af bandarísku olíuleitarfyrirtæki, Western Geophysical Incorporated,

árið 1978 til að kanna hvort þykk setlög í Öxarfjarðardjúpi gangi inn undir landið.
    Í fimmta lagi að staðfesta með viðnámsmælingum hvort jarðhitasvæði er austast í Öxarfirði og kanna útbreiðslu þess.
    Það er áætlun Orkustofnunar að samtals þyrfti að verja til slíkra rannsókna á þessu ári rúmlega 4 millj. kr. Þar af er rúmlega 1 millj. eingöngu vegna rannsókna á jarðhita.
    Á verkáætlunum Orkustofnunar fyrir yfirstandandi ár er ekki gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu til þessa verks en þar er hins vegar nú gert ráð fyrir því, m.a. vegna áhuga sem ráðuneytið og þingmenn kjördæmisins hafa sýnt, að það verði unnið að liðum 3 og 4 í þeirri áætlun sem ég lýsti áðan, þ.e. að ljúka úrvinnslu hinna jarðeðlisfræðilegu athugana sem gerðar voru árið 1987 í samvinnu við sovéska vísindamenn og að vinna úr gögnum bandaríska fyrirtækisins frá árinu 1978 til að kanna betur jarðeðlisfræðilega setlögin í Öxarfjarðardjúpi.
    Ég geri ráð fyrir því að þetta verði gert og hafist handa við bæði verkin innan skamms. Hins vegar er ekki fé til að framkvæma þessa áætlun að öllu leyti. Á öðru ári þessarar áætlunar er gert ráð fyrir tveimur verkþáttum enda reynist niðurstöður úrvinnslurannsóknanna jákvæðar. En það er mikilvægast að fara fyrst í hina fræðilegu umgjörð. Síðan er gert ráð fyrir endurkastsmælingum, bergmálsdýptarmælingar mætti kalla þær eða ómskoðanir, til að afla nákvæmari upplýsinga um gerð og þykkt setlaganna og svo að bora rannsóknarholu í jarðhitakerfi austurhluta Öxarfjarðar. Slíkar rannsóknir mundu kosta a.m.k. 20 millj. kr. Í þær rannsóknir verður ekki ráðist án sérstakrar fjárveitingar. Loks er svo á þriðja ári gert ráð fyrir úrvinnslu úr bergmálsmælingunum, endurkastsmælingunum og er kostnaður áætlaður um 5 millj. kr. Ég hef hug á því að fylgja þessari rannsóknaráætlun Orkustofnunar eftir. En að sjálfsögðu verður framhaldið að ráðast af niðurstöðum undirstöðurannsókna.