Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegur forseti. Ég þakka aftur fyrir þetta tækifæri til þess að ræða þetta áhugaverða rannsóknarverkefni. Það er rétt hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. að það var ekki unnt að fá til þessa verks svo ríflega fjárveitingu sem hann gerði till. um. Hins vegar, eins og kom fram í mínu máli, er nú unnið að úrvinnslu úr þyngdar- og hljóðhraðamælingum sem unnar voru í samvinnu við sovéska vísindamenn á árinu 1987. Það verður farið til þess að endurskoða úrvinnslu úr setþykktarmælingum sem gerðar voru af bandarísku olíuleitarfyrirtæki árið 1978 til þess að kanna þykkt setlaganna í Öxarfjarðardjúpinu og hvort og hversu langt þau ganga inn undir land en það er afar mikilvægt eins og kom fram í máli hv. 2. þm. Vestf. Þetta eru áhugaverð viðfangsefni og ég tek undir það með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa talað að það er full ástæða til þess að fylgja þessum rannsóknum eftir. Eins og jafnan er hér um að tefla hversu hratt menn geta farið fjármunanna vegna. Ég tel ekki tímabært að leita eftir samstarfsaðila í málinu, eins og kom fram í máli hv. 2. þm. Vestf., fyrr en við höfum unnið úr þessum grundvallarrannsóknum og látið fara fram efnarannsóknir á gasinu, ítarlegri en til þessa hafa farið fram, og unnið að jarðlagagreiningu. Þetta eru allt saman verkefni sem ég vil að fái sinn stað í rannsóknaráætlun Orkustofnunar á þessu og næsta ári og mun semja fjárveitingatillögur í samræmi við það.
Ég vil að lokum, virðulegi forseti, bæta því við að mér finnst það ekki makleg orðsending frá hv. 6. þm. Norðurl. e. að halda því fram að slík rannsókn hefði að sjálfsögðu farið fram hefði þessi gasfundur verið annars staðar á landinu. Þetta er órökstutt og ómaklegt.