Þróunarsjóður lagmetis
Fimmtudaginn 08. mars 1990


     Fyrirspyrjandi (Ásgeir Hannes Eiríksson):
    Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir svör. Það er rétt að spurningin er flókin. Það er kannski ekki einfalt að svara þessu. Ég held þó að kjarni málsins sé sá að hæstv. iðnrh. sér að það þarf að endurskoða þennan sjóð og hann hefur lýst því hér yfir að það sé á hans verkefnaskrá. Eins og hæstv. ráðherra benti á er engin sanngirni í því að aðeins ein útflutningsgrein borgi í sjóð af þessu tagi í sjávarútvegi þegar aðrar hafa hætt greiðslum.
    Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Ég vonast til þess að fá frá honum lista yfir lán og styrki til stærstu styrkþeganna úr sjóðnum. Það hefur þegar verið upplýst að það er Sölustofnun lagmetis, og læt ég alla frekari umræðu bíða þangað til ég fæ þá skýrslu.