Fyrirspyrjandi (Ásgeir Hannes Eiríksson):
Virðulegi forseti. Sjónvarp og sími eru sennilega þau þjónustutæki sem við getum síst verið án í dag. Bæði eru þetta ríkisfyrirtæki og ekki um neina samkeppni að ræða fyrr en núna á allra síðustu árum að Ríkissjónvarpið hefur fengið nokkra samkeppni og er það vissulega af hinu góða.
Þjónustueðli sjónvarps og síma er slíkt að mikið hagsmunamál er að allir landsmenn geti notið þessara tækja og sérstaklega á það við um sjómenn á bátum flotans sem eru á veiðum kringum landið. Hins vegar eru stórir fletir á hafinu þar sem hvorki sími né sjónvarp næst. Öryggisleysið er mikið sem því fylgir, sérstaklega í sambandi við símann, en sjónvarpið líka þó það hafi kannski fyrst og fremst afþreyingargildi. Sjómenn vilja fylgjast með því sem er að gerast. Sérstaklega vekur það mikinn áhuga þegar landsleikir eru í sjónvarpi og annað slíkt efni eins og fegurðarsamkeppnir. Þá hópast oft bátar saman á litlu svæði þar sem hægt er að ná efninu. Því spyr ég hæstv. samgrh.:
,,1. Hvað kostar að efla dreifikerfi ríkissjónvarpsins þannig að sjónvarpssendingar náist á helstu fiskimiðunum umhverfis landið?
2. Eru áætlanir í bígerð þar að lútandi?``