Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Ég kveð mér hljóðs hérna vegna þess að þann 5. maí 1988 flutti ég nákvæmlega samhljóða fyrirspurn og fékk mjög svipuð svör við henni og hv. þm. Ásgeir Hannes Eiríksson fær nú. En það sem vekur athygli mína í svarinu frá 5. maí er að þar gerir ráðherrann ráð fyrir að áætlaður heildarkostnaður vegna úrbóta í þessum efnum muni vera um 430 millj. kr. Nú kemur ráðherrann með tölur sem voru útreiknaðar sex mánuðum síðar, í desember 1988, og þá hefur heildarkostnaðurinn hækkað upp í 490 millj. Á sex mánuðum hefur hann hækkað um 10 millj. á mánuði eða um 60 millj. kr. Þetta vekur auðvitað upp spurningar um áætlanagerð hjá ríkisvaldinu yfir höfuð, að á sex mánuðum skuli sami liður, sami heildarkostnaður, vaxa um 60 millj. kr. Hygg ég að það fylgi ekki almennri efnahagsþróun í landinu.
Að öðru leyti tek ég að sjálfsögðu undir efni þessarar fyrirspurnar og vonast eftir því að hugur ráðherrans fái að verða að veruleika sem allra fyrst. Þó var það mat manna í maí 1988 að þetta væri svo dýrt að það yrði að bíða betri tíma.