Skýrsla um viðræður EFTA og EB
Fimmtudaginn 08. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill fullvissa hv. þm. um að kannað hefur verið á hverjum einasta fundi síðan umræðan fór síðast fram um þetta umrædda mál hvort hæstv. utanrrh. gæti verið viðstaddur fundinn. Það verður að segjast eins og er að svo hefur gjarnan staðið á að hann hefur verið fjarverandi svo að forseti hefur ekki tekið málið á dagskrá. Ég veit ekki betur en þessi umræða geti farið fram n.k. mánudag og mun að sjálfsögðu láta kanna það. Það eru enn þá tveir hv. þm. á mælendaskrá, þar á meðal hv. 1. þm. Suðurl. Af forseta hálfu get ég alveg fullvissað hv. þm. um að allt hefur verið reynt sem hægt hefur verið til þess að ljúka þessari umræðu og því verður haldið áfram. En eins og hv. þm. vita hefur hæstv. utanrrh. mikið þurft að vera að heiman einmitt vegna starfa að þessum málum og álitið hefur verið að það væri illmögulegt að halda þessari umræðu áfram án hans viðveru. En það mun svo sannarlega verða reynt að taka málið á dagskrá eins fljótt og unnt er.