Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég get fullvissað hv. 1. þm. Reykv. um það að hann mun aldrei þurfa að taka aftur þessi allra síðustu orð sín, það er alveg víst. Hitt þykir mér líklegra að hann þurfi að afturkalla þá vanheilögu þrenningu sem hann hefur til sögunnar kvatt, nefnilega þau orð sem hann notaði til þess að lýsa afskiptum viðskrh. af ákveðnum þætti þess máls sem hér hefur verið til umræðu. Ég ætla ekki að endurtaka þau orð en vil minna þm. á það að það sem ég sagði til þess að lýsa málflutningi 1. þm. Reykv. varðaði þann þátt málsins eingöngu því að sjálfsögðu var sumt --- og sérstaklega það síðast sagða --- alveg rétt hjá þm.