Frestun umræðu um fjáraukalög
Fimmtudaginn 08. mars 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins láta þess getið hér að ég tel mjög óheppilegt að mælt verði fyrir 5. dagskrármáli, fjáraukalögum 1990, nú þar sem ýmsir þingmenn, sem örugglega hefðu áhuga á að taka þátt í þeirri umræðu, hafa bundið sig annars staðar, á fundi t.d. kl. 5. Ég hefði viljað mælast til þess að þessu máli yrði frestað.