Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Ef það mætti spara nokkra umræðu um þingsköp vill forseti upplýsa að nk. mánudag hefur verið lofað að hér fari fram margnefnd umræða um viðræður EFTA-ríkjanna við Efnahagsbandalagið. Í öðru lagi hefur hv. 6. þm. Norðurl. e. verið lofað að taka upp mál utan dagskrár. Það er ófært fyrir forseta að geta aldrei haldið dagskrá sem um hefur samist við hv. þm. Það er auðvitað ljóst að þar sem umræðum um þessi tvö frv. til fjáraukalaga verður ekki lokið nú verður þeirri umræðu haldið áfram á mánudaginn og þá verður fundur auðvitað að standa eins lengi og þurfa þykir. Ég tek undir það með hæstv. fjmrh. og hv. 1. þm. Vesturl. að þessi mál verða vitanlega að komast til nefndar.
Ég vil einnig upplýsa að á þessu þingi eru eftir níu fundir í Sþ. Það er alveg ljóst að þingmenn verða að búa sig undir að vera viðstaddir hér í húsinu þegar þessir fundir eru haldnir ef ljúka á því verki sem fram undan er. Og vitaskuld er það hárrétt hjá hv. 6. þm. Reykn. að það er tæpast sæmandi að ræða þessi mál hér þar sem svo fáir eru viðstaddir, hæstv. fjmrh. minntist einnig á það. Ég held því að forseta sé nauðugur einn kostur að fresta umræðu um fjáraukalög fyrir 1990. Forseti hlýtur að fara að ósk þingmanna þar um og í trausti þess að hv. þingheimur treysti sér til þess að eiga langan dag á mánudaginn verður auðvitað leitast við að koma þessu máli til nefndar þá.