Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Mér þykir það miður að þurfa að koma hér í þriðja sinn en ég tel ekki að ég hafi verið að ryðjast hér í ræðustólinn. Ég held að ég hafi gengið svona nokkuð sæmilega prúðmannlega hér upp og bent kurteislega á hvernig ástandið er hér í þinginu þegar þessi mikilvæga umræða átti að hefjast. Og ég vil taka það fram sérstaklega að ég er ekki meðvituð um neina samninga milli sjálfstæðisþingmanna eða formanns Sjálfstfl. og forseta um þinghaldið nk. mánudag. Ég var aðeins að benda á að þetta væri óheppilegur tími nú þegar svo langt er liðið á dag að hefja þessa mikilvægu umræðu þar sem ég vissi að þingmenn, og þá vil ég taka fram að ég er ekki að tala um þingmenn Sjálfstfl., því að sá þingmaður Sjálfstfl. sem kemur til með að taka þátt í þeirri umræðu, hv. 2. þm. Norðurl. v., er hér í húsinu og ég var búinn að geta þess sérstaklega. En það eru aðrir þingmenn sem ég veit um sem eru ekki í þingflokki Sjálfstfl. sem vildu vera við þessa umræðu og eru búnir að binda sig á fundi kl. 5 og lái þeim það hver sem vill.
Ég vil aðeins láta þetta koma fram. Að öðru leyti læt ég þetta mál afskiptalaust.