Frestun umræðu um fjáraukalög
Fimmtudaginn 08. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti mun að sjálfsögðu gera allt sem í hans valdi stendur til þess að þetta mál megi afgreiðast til nefndar á mánudag, en svo að allrar sanngirni sé gætt, þá vil ég benda hæstv. ráðherra á að frv. til fjáraukalaga 1990 var dreift 5. mars sl. Það hefur því ekki legið vikum saman fyrir þinginu heldur fjóra daga.