Vandi loðdýræktarinnar
Mánudaginn 12. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eins og áður hefur komið fram hefur hv. 6. þm. Norðurl. e. farið þess á leit að ræða um vanda loðdýraræktarinnar. Fer sú umræða nú fram með góðfúslegu leyfi þingflokksformanna um að hálftíma frestur verði á þingflokksfundum og þeir hefjist kl. hálfsex. Umræðan fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga og stendur því í hálftíma.