Alexander Stefánsson:
Virðulegi forseti. Mér finnst ástæða til að minna á það hér að þetta mál er nú búið að vera alllengi í meðförum þingsins og alltaf hefur verið talað um að gera viðhlítandi ráðstafanir. Landbúnaðarnefndir þingsins komu saman vegna þessa máls ekki alls fyrir löngu til þess að reyna að gera sér grein fyrir hvernig málin stæðu. Þá lágu fyrir samþykkt lög og reglugerð var að koma út og menn héldu að þá væri hægt að fara að sjá fyrir endann á því hverju væri hægt að bjarga og hverju ekki. Því miður eru alls konar hnútar á þessu máli sem hafa vafist fyrir mönnum. Ég segi það ekki hér í gagnrýni því ég veit að þeir menn sem hafa unnið að þessu, bæði í Framleiðnisjóði og annars staðar, hafa lagt nótt við dag til að reyna að finna lausn á þessu. En í dag strandar fyrst og fremst á fóðurstöðvunum.
Við nefndarmenn höfum farið á fund inn í Byggðastofun og þar er okkur tjáð að skuldir fóðurstöðvanna séu um 340--360 millj. kr. Af því skulda bændur 92 millj. og eru sjálfskuldarábyrgðir bænda og annarra aðila 31--37 millj. kr. sem er mjög alvarlegt mál. Og það hefur komið fram að þarna þarf að taka á málum því það getur vel verið að ástæða sé til að skoða í alvöru hvort ekki sé hægt að gera einhverjar sérstakar milliráðstafanir svo þessar fóðurstöðvar geti sinnt hlutverki sínu á einhvern máta. Og það hefur meira að segja komið ósk frá Eyfirðingum um að gerð verði úttekt á fóðurstöðvum á Sauðárkróki og Dalvík þó að það sé í raun og veru ekki þeirra hlutverk. En alla vega eru þarna ábendingar sem þarf að skoða og það getur vel verið að það séu fleiri atriði inni í þessu sem gætu bjargað málunum um fóðuröflun, a.m.k. meðan verið er að átta sig á því hvað menn ætla að gera til frambúðar.
Ég vil segja það sem mína skoðun að það er útilokað að Alþingi geti staðið frammi fyrir þessu máli mánuð eftir mánuð, jafnvel ár eftir ár eins og dæmin
sanna, án þess að finna möguleika á því að hér á Íslandi geti einhver hluti af þessari starfsemi haldið velli. Það er álit a.m.k. Framleiðnisjóðs og fleiri að um 130 bú gætu starfað við núverandi aðstæður. En fóðurstöðvarnar eru núna hnúturinn sem verður að leysa.