Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 51 frá 29. maí 1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum. Frv. þetta felur í sér að við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein þar sem kveðið verði á um rétt ráðherra til þess að láta innheimta sérstakt eftirlitsgjald af öllum innfluttum plöntum sem megi vera tiltekin krónutala á hverja þyngdareiningu eða hlutfall af tollverði vörunnar. Gjaldið má þó aldrei verða hærra en 2% af þeirri nefndu tollvöru. Nánari ákvæði verði sett um þetta gjald og enn fremur skal setja sérstakar reglur um sambærilegt eftirlitsgjald til að standa straum af eftirliti með útflutningi á plöntum.
    Á árinu 1981 voru samþykkt lög hér á Alþingi um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum. Megintilgangur þeirra laga er að reyna að koma í veg fyrir að til landsins berist skaðvaldar og að þeim skaðvöldum sem hingað berast verði útrýmt. Í lögunum er kveðið á um að haft skuli eftirlit með vörum sem fluttar eru til landsins og geti haft hættu í för með sér í þessum efnum. Í þessum lögum eru landbrh. síðan veittar ýmsar heimildir til að grípa til aðgerða í því skyni að hindra útbreiðslu skaðvalda. Á þeim árum sem liðin eru frá því að lögin voru sett hefur margsinnis komið í ljós að mjög mikil þörf er á virku eftirliti með þeim aðilum sem lögin ná yfir. Því miður hafa borist til
landsins skæðir sjúkdómar og illviðráðanleg meindýr og hefur hvort tveggja kostað innlendan landbúnað miklar fjárhæðir og stjórnvöld sömuleiðis í baráttu við útrýmingu þeirra. Í því sambandi nægir að nefna bakteríusjúkdóminn hringrot í kartöflum og skordýrið sem nefnt hefur verið ,,ameríska blómatripsið`` en reynt hefur verið að íslenska betur og kallað kögurvængja. Þetta kvikindi herjar á plöntur í nokkrum gróðurhúsum og sér því miður engan veginn fyrir endann á slagnum við það. Þetta er skordýr sem hefur afar mikið þol gegn eiturefnum og aðgerðir til útrýmingar á því eru bæði kostnaðarsamar og tímafrekar. Sem betur fer hefur þetta skordýr að vísu eingöngu fundist hjá blómaframleiðendum enn þá en eðli málsins samkvæmt yrði fljótt um gríðarlegt tjón að ræða ef það dreifði sér yfir til grænmetisframleiðenda.
    Þessi tvö dæmi hygg ég, herra forseti, að nægi til að undirstrika nauðsyn þess að hér sé haldið uppi virku og markvissu eftirliti með innflutningi sem haft getur hættu í för með sér á þessu sviði.
    Það má einnig bæta því við að á sl. sumri, eins og frægt er orðið, þegar flytja þurfti tímabundið til landsins kartöflur vegna þess að innlend framleiðsla var upp urin, kom í ljós mikill misbrestur á því að þær kartöflur sem fluttar voru til landsins uppfylltu þau skilyrði um heilbrigði sem fyrrnefnd lög kveða á um. Og það jafnvel þó að sendingunum fylgdu vottorð viðurkenndra stjórnvalda í útflutningslöndunum. Það kom hvað eftir annað í ljós við skoðun sérfræðinga

Rannsóknastofnunar landbúnaðarins að slík vottorð voru ekki nægjanleg trygging fyrir því að framleiðslan væri í góðu lagi. Það er því augljóst mál að ærin ástæða er til að hafa fyllsta vara á þegar um slíkan innflutning er að ræða.
    Það hefur orðið niðurstaða þeirra sem þessi mál hafa skoðað að eðlilegast sé að renna traustari stoðum undir þetta eftirlit og þessar sjúkdómavarnir með því að heimila sjálfstæða gjaldtöku af innflutningnum til að standa straum af eftirlitinu. Það eftirlit sem í gangi er í dag er í algeru fjársvelti. Þar vantar bæði starfskrafta og starfsaðstöðu og auðvitað fyrst og fremst fjármagn til þess að unnt sé að sinna því sem skyldi og dæmin sýna að nauðsynlegt er. Fyrir því eru mörg fordæmi, bæði innan lands og erlendis, að gjald sé lagt á vöruna til að standa straum af þessu eftirliti. Nægir að nefna það eftirlit sem er með framleiðslu og verslun á fóðurvörum, áburði og sáðvörum og er fjármagnað með sambærilegu gjaldi.
    Einnig hefur verið kannað að sambærileg gjöld þekkjast í öðrum löndum, þar á meðal í þeim nágrannalöndum okkar ýmsum sem eru aðilar að sams konar fríverslunarsamvinnu og við erum. Það er því ljóst að hér er ekki á ferðinni gjaldtaka sem á nokkurn hátt brýtur í bága við samninga okkar og skuldbindingar í alþjóðlegum viðskiptum hvað þetta snertir.
    Ég hygg að efni frv. að öðru leyti skýri sig sjálft. Það er næsta einfalt og ég hef í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta. Það er rétt að taka það fram og undirstrika að innheimtu gjaldsins er fyrst og fremst ætlað að taka til plantna, eins og þær eru nánar skilgreindar í greinargerð. Nær það til innfluttra blómlauka, græðlinga, pottaplantna, trjáa og runna, afskorinna blóma, jólatrjáa, kartaflna og fersks grænmetis í 6. og 7. kafla tollskrár, eins og þar segir. Ekki er ætlunin að innheimta gjaldið af innfluttum ávöxtum enda litið svo á að eftirlit þeirra vegna snúist fremur og jafnvel fyrst og fremst um ýmis aðskotaefni. Á sama hátt er ekki ætlunin að innheimta þetta gjald af frystum eða þurrkuðum matjurtum.
    Ég vil svo að lokum, virðulegur forseti, láta það í ljósi sem enn frekari rök af minni hálfu fyrir því að taka fastar á þessum hlutum en gert hefur verið hingað til að það hefur verið og er á mörgum sviðum okkur Íslendingum
enn þá til vansa hversu lítið eftirlit við höfum með því að vara sem berst til landsins, ýmiss konar varningur, standist þær gæðakröfur sem við setjum eða eigum að setja okkur í þeim efnum. Því miður hefur það brugðið við allt of oft að Ísland er hálfgerð ruslakista fyrir vörur sem eru útilokaðar frá mörkuðum víða erlendis af ýmsum ástæðum. Þær standast ekki gæðakröfur, hafa ekki fullnægjandi heilbrigðisvottorð eða annað af því tagi. Og þeim tíma verður auðvitað að linna. Við getum ekki sóma okkar vegna leyft okkur það og eigum ekki að láta bjóða okkur það að vera einhvers konar ruslakista fyrir varning sem ekki er gjaldgengur á markaði í viðskipta- og nágrannalöndunum. Þetta frv. er á sinn hátt liður í því

að tryggja að á þessu sviði verði okkur ekki boðið upp á annað en það sem er fyllilega frambærilegt og hefur ekki í för með sér hættur hvað sjúkdóma eða meindýr snertir á þessu sviði.
    Að lokinni þessari umræðu, virðulegi forseti, legg ég svo til að málinu verði vísað til hv. landbn.