Flm. (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 3. þm. Vestf. fyrir að taka þátt í þessari umræðu og þær ábendingar sem hann hefur komið fram með. Þetta eru nokkuð alvarlegar ásakanir sem þingmaðurinn ber á lögskráningarstjóra og útgerðarmenn að trassa verulega að lögskrá skipsáhafnir. En eins og lögin eru í dag þá er skylda að lögskrá á alla báta yfir 12 tonnum og þeir mega ekki fara út á sjó nema svo sé, ef ég man þetta rétt sem ég lærði einhvern tímann þegar ég stúderaði þessi fræði og raunar kenndi. Mér finnst ástæða til, og ég tek undir þau sjónarmið sem fram komu hjá hv. þm., að athugað verði gaumgæfilega hvernig lögskráningarmálum er háttað vítt og breitt um landið og hvort það er mismunandi eftir landshlutum hvernig lögskráning er.
En það er ekki þar með sagt að það frv. sem hér er lagt fram þurfi að vera lítilvægt. Ég tel einmitt að það að mæla fyrir um heimild til handa þeim aðilum sem vilja hafa sín mál í lagi sé af hinu góða. Það hefur að mínu viti verið mjög slæmt að aðilar sem hafa viljað standa vel gagnvart sínum áhöfnum hafa ekki getað fengið lögskráningu hjá lögskráningarstjóra. Mér finnst þetta vera mjög bagalegt og þess vegna er þetta frv. lagt fram, til að koma til móts við þá aðila sem vilja þá standa vel að sínum málum.
Eins og margir vita eru margir bátar sem eru taldir 10--12 tonn miklu stærri en það. Með annarri mælingu eru þeir kannski upp undir 20 eða 25 tonn. Þetta vildi ég að fram kæmi, en ég vildi þakka hv. þm. fyrir að vekja máls á því sem hann gerði hér í þessari umræðu. Og þakka honum fyrir það innlegg. Ég tel ekki að hann hafi á einn eða annan hátt verið að gagnrýna frv. sem slíkt og það sem kemur fram í því. En ég vona svo sannarlega að þegar mál þetta verður tekið fyrir í hv. samgn. verði öll þessi mál könnuð.