Tilhögun þingfunda
Þriðjudaginn 13. mars 1990


     Stefán Valgeirsson:
    Herra forseti. Á fundi sem var haldinn með þingforsetum og formönnum flokkanna í gær var ákveðið og fastbundið, að ég tel, að klára þetta 3. mál. Ég vil að við það verði staðið vegna þess að ég pressaði það að ég gæti verið hér í dag af þessum ástæðum en fer í aðgerð á morgun. Ég vil að það sem er talað um á þessum fundum eins og í gær standi og ég tel að það hafi verið fastmælum bundið að 3. málið kláraðist í dag, herra forseti.