Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég vil segja það í upphafi ræðu minnar að ég þarf því miður að vera á stuttum fundi kl. 5.15 og hafði mælst til þess við virðulegan forseta þessarar deildar að ef umræðu yrði ekki lokið þá, og ég er nú ekki viss um að ég verði þá búinn að ljúka minni ræðu, þá verði gert um það bil hálftíma hlé svo að ég geti verið á þeim stutta fundi sem ég þarf óhjákvæmilega að vera á kl. 5.15 en honum verður örugglega lokið á 20 mínútum eða svo. Vona ég að hv. deildarmenn virði þá ósk.
Það hefur verið einn þráður í vörn þeirra sem hér hafa talað fyrir þessum brtt. og hann er sá að í frv. séu ákvæði um það að þeir einstaklingar sem fjmrh. velji til að meta ábyrgðir eigi að vera lykillinn að framkvæmd þessa frv. Og það hefur verið sagt að enginn sé að tala um að allir eigi að fá 50%, enginn sé að tala um að endilega eigi að veita ábyrgð á hafbeitarfiskinn og enginn sé endilega að tala um að það verði halli, heldur eigi bara fulltrúi fjmrh. að meta það og þetta sé út af fyrir sig áhættulaust allt saman. Jú, það hefur nefnilega legið í orðunum vegna þess að þrátt fyrir óskir mínar hér um að stuðningsmenn þessara brtt. mætu það og létu þá það mat koma fram hver yrði hugsanlega reikningurinn sem verður árlega færður inn í fjárlög vegna þessara ábyrgða hafa ekki komið fram neinar upplýsingar, í reynd ekki eitt einasta orð frá flm. þessara tillagna um það hvaða upphæðir sé árlega hægt að áætla að verði tapið sem almenningur í landinu þurfi að greiða vegna þessara ábyrgða. Ef ekki er um að ræða neitt tap er út af fyrir sig allt í lagi að hafa frv. óbreytt eins og við lögðum það fram. Og mér finnst það ekki vera réttur málflutningur, hvað þá heldur heiðarlegur að koma sér hjá því í allri umræðunni að lýsa því hvað menn meta að tapið verði mikið og kostnaður almennings þar með hár.
Ég minni á í þessu sambandi að menn leggja ríka áherslu á að fram fari kostnaðarmat á sérhverju stjfrv. sem hér er lagt fram. Og ég minni á það að hv. síðasti ræðumaður hefur talað hér stórum orðum á undanförnum árum og flytur nú frv. um að ekkert gjald megi greiða úr ríkissjóði nema Alþingi hafi samþykkt upphæð þess gjalds. Engu að síður ætla menn nú að láta samþykkja tillögur sem ekkert kostnaðarmat hefur verið framkvæmt á og skuldbinda ríkissjóð til að greiða upphæðir á næstu árum sem enginn veit hve verða háar. Og ég tók auðvitað eftir því að minn ágæti nafni, hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson, sagði ekki eitt einasta orð í ræðu sinni hér áðan um fjórða gagnrýnisatriðið sem ég flutti sem meginatriði á þessar brtt., þ.e. að þær stönguðust algerlega á við það frv. sem fjvn. hefur flutt hér um greiðsluskuldbindingar úr ríkissjóði og kveður á um að greiða ekkert gjald úr ríkissjóði nema Alþingi hafi áður ákveðið upphæðina á því gjaldi. Mér fannst það vera virðingarvert hjá hv. þm. að koma sér hjá því að minnast á þessa þversögn þótt hann hafi verið harðasti talsmaður þess hér á Alþingi að ekki megi greiða neitt
slíkt gjald nema það hafi verið samþykkt hér á Alþingi og jafnvel haft svo stór orð þar um að draga ætti þá ráðherra fyrir landsdóm vegna þess að það væri brot á stjórnarskránni. Nú er hann hins vegar að mæla með því að Alþingi samþykki hér greiðsluskyldur á ríkissjóð á næstu árum án þess að kostnaðarmat hafi farið fram með neinum hætti og án þess að nokkuð sé kveðið á um það hver megi vera hámarksupphæðin á þessu tapi sem ríkissjóður á að greiða, það á að vera fullkomlega opinn tékki sem ríkissjóður á að greiða á hverju ári á þessum áratug. Og ég verð að segja með fullri virðingu fyrir þeim mönnum sem ég hef rætt við í mikilli alvöru um breytingar í ríkisfjármálum að ég fer ekki að taka mark á þeim brtt. þegar menn koma hér upp á sömu dögunum og leggja annars vegar til að ekki megi greiða neitt úr ríkissjóði nema sú upphæð sé ákveðin í fjárlögum og telja svo nauðsynjamál hér að Alþingi samþykki óútfylltan tékka varðandi þessar ábyrgðir. Ég verð að sega alveg eins og er að ég kem því ekki heim og saman hvernig hægt er að styðja hvort tveggja, hvað þá heldur flytja frv. fjvn. og standa að þessu. Og ég verð að segja eins og er, ég trúði því ekki þegar mér var sagt það að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson væri husanlegur stuðningsmaður þessara brtt. vegna þess að mér fannst þetta ganga svo þvert á höfuðatriðin í afstöðu hans til ríkisfjármála sem hann hefur túlkað mjög einarðlega hér á Alþingi á undanförnum árum.
Ég vil í því sambandi nefna það sérstaklega, þó ég ætli að koma að því nánar hér að lokinni frestun þessarar umræðu, að hér er verið að leggja til að teknar séu ábyrgðir og veð í óveiddum fiski. Það er ekki bara verið að leggja til að veita ábyrgðir og veð í fiski sem er verið að ala upp í kerunum, heldur er verið að leggja til að það skuli vera lagaskylda að veita ábyrgðir og taka veð í fiskinum sem syndir úti í sjónum og enginn veit hvort kemur eða í hvað miklu magni. ( ÓÞÞ: Við seljum.) Já, en er þá ekki eðlilegt að forsvarsmenn sjávarútvegsins segi líka: Fáum við ekki líka lán og ábyrgðir og veð út á þorskinn og ýsuna og karfann sem er óveiddur í sjónum? Eða er það bara fiskeldið sem á að fá ábyrgðir og veð í fiski í sjónum sem er óveiddur? Og það er auðvitað athyglisvert og virðingarvert að hv. þm. Stefán Valgeirsson
skuli, þrátt fyrir stuðning sinn við aðrar af þessum brtt., lýsa því yfir að hann hafi þó stórar efasemdir um hafbeitartillöguna og er merkilegt að Stefáni Valgeirssyni blöskri jafnvel að menn skuli ætla að ganga svo langt í þessum efnum að leggja til ábyrgðir og veð varðandi hafbeitina. Er það nú merkilegt, að það skuli þurfa Stefán Valgeirsson til þess að koma hér upp og lýsa því yfir að sér blöskri. En hv. þm. Friðrik Sophusson vílar ekki fyrir sér að mæla með því hvað eftir annað hér að ábyrgðirnar og veðin séu látin ná til hafbeitarinnar og fiskjarins sem syndir hér úti í sjónum og enginn veit hvort nokkurn tíma kemur eða þá í hve miklum mæli.
Ég vona að menn hugleiði hvaða
grundvallarbreyting felst í því að leggja til að það sé lagaskylda að taka hafbeitina inn í þetta kerfi og hvaða fordæmi það getur skapað fyrir aðrar atvinnugreinar í landinu. Eða er bara alveg sama hvaða grundvallarreglur eru hér í gildi af því að það þarf að bjarga, bjarga, bjarga, sem er algengasta orðið sem menn nota hér?
Virðulegi forseti. Ég verð því miður, eins og ég gat um áðan, að óska eftir því að gert verði um það bil hálftíma hlé á umræðunni um þetta mál. Verði fallist á það mun ég gera hlé á ræðu minni en koma aftur til þessa fundar nokkru fyrir kl. 6.