Frsm. meiri hl. allshn. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 47 16. apríl 1972, um náttúruvernd, lögum nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum sem varða yfirstjórn umhverfismála. Nál. meiri hl. liggur fyrir á þskj. 708 og brtt. á þskj. 709.
Þetta frv. hefur verið í meðförum nefndarinnar allnokkurn tíma. Það var sent til umsagnar fjölmargra aðila í desembermánuði ásamt frv. um Stjórnarráð Íslands sem þegar hefur verið afgreitt sem lög frá Alþingi. Ákveðið var að afgreiða frv. um Stjórnarráðið sérstaklega eins og þingmönnum ætti að vera í fersku minni, en nefndinni þótti nauðsynlegt að ræða ítarlega um umsagnir varðandi þau verkefni sem umhverfisráðuneyti á að hafa með höndum.
Nefndin hefur rætt þessi mál á fjölmörgum fundum. Ég hygg að þetta mál hafi verið tekið fyrir á 14 nefndarfundum og vil ég nota tækifærið hér í upphafi til að þakka meðnefndarmönnum mínum fyrir ágætt starf. Þó að ágreiningur hafi verið mikill og leiðir hafi skilið er ekki undan samstarfinu í nefndinni að kvarta.
Leitast var við í þessu máli að beina sjónum að þeim ágreiningsmálum sem upp hafa komið varðandi verkaskiptingu og verkefnatilfærslu. Þess skal getið að Kvennalistinn hafði áheyrnarfulltrúa á fundum nefndarinnar og einnig stóð þingflokki Alþb. það til boða en áheyrnarfulltrúi tók þó ekki sæti fyrir þess hönd.
Eins og áður er sagt var málið sent til umsagnar í desember og nefndin óskaði þá eftir áliti fjölmargra aðila um frv. Bárust umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Almannavörnum ríkisins, Bjarna Guðleifssyni, borgarlækni, Búnaðarfélagi Íslands, Bændaskólanum á Hólum, Bændaskólanum á Hvanneyri, Dýralæknafélagi Íslands, eiturefnanefnd, Félagi ísl. iðnrekenda, Félagi ísl. náttúrufræðinga, félmrn., Ferðamálaráði Íslands, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Geislavörnum ríkisins, Hafrannsóknastofnun, heilbr.- og trmrn., Heilbrigðisfulltrúafélagi Íslands, Hinu íslenska náttúrufræðafélagi, Hjörleifi Guttormssyni alþm., Hollustuvernd ríkisins, iðnrn., Jarðfræðafélagi Íslands, landbrn., Landgræðslu ríkisins, landlækni, Landmælingum Íslands, Landvernd, Lífi og landi, Líffræðistofnun Háskólans, menntmrn., Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruverndarráði, Orkustofnun, Rannsóknaráði ríkisins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá, röntgendeildum Landspítalans, Borgarspítalans og Landakotsspítala, Röntgentæknafélagi Íslands, Sambandi ísl. sveitarfélaga, samgrn., Siglingamálastofnun ríkisins, Skipulagi ríkisins, Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélagi Íslands, Stéttarsambandi bænda, Veðurstofu Íslands, Vinnueftirliti ríkisins, Vísindaráði, yfirdýralækninum í Reykjavík, Þjóðminjasafni Íslands. Auk þess hafði nefndin til athugunar umsagnir sem bárust allsherjarnefnd á síðasta þingi um þau frumvörp um
yfirstjórn umhverfismála er þá lágu fyrir og umsagnir þær sem bárust nefnd þeirri sem samdi frumvarp það sem nú er til umfjöllunar.
Frá þessum aðilum bárust skriflegar umsagnir inn til nefndarinnar en eins og áður er sagt þá kannaði nefndin rækilega þau atriði frv. sem mestur ágreiningur er um og kallaði til viðræðna við nefndina þá aðila sem málið varðar mest að því leyti að samþykkt frv. þýðir breytingu á yfirstjórn stofnunarinnar sem þeir bera ábyrgð á.
Þessir aðilar voru: Hermann Sveinbjörnsson, stjórnarformaður Hollustuverndar ríkisins, Leifur Eysteinsson, framkvæmdastjóri Hollustuverndar ríkisins, Þórhallur Halldórsson, forstöðumaður heilbrigðiseftirlits Hollustuverndar ríkisins, Ólafur Pétursson, forstöðumaður mengunarvarnasviðs
Hollustuverndar ríkisins, Guðlaugur Hannesson, forstöðumaður rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins, Daníel Viðarsson, forstöðumaður eiturefnasviðs Hollustuverndar ríkisins, Páll Bergþórsson veðurstofustjóri, Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri, Gunnar Ágústsson, forstöðumaður mengunarvarnasviðs Siglingamálastofnunar ríkisins, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbr.- og trmrn., Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geislavarna ríkisins, Guðjón Magnússon, stjórnarmaður í Geislavörnum ríkisins, Ólafur Ólafsson landlæknir, Jón Loftsson skógræktarstjóri, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Jón Gunnar Ottósson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá, Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri í landbrn., Þór Magnússon þjóðminjavörður, Páll Hersteinsson veiðistjóri, Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, Þorsteinn Tómasson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri, Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaðarfélags Íslands, Bjarni Guðráðsson og Einar Þorsteinsson frá Búnaðarfélagi Íslands og Birgir Blöndal, skrifstofustjóri Sambands ísl. sveitarfélaga.
Það er ljóst að skiptar skoðanir eru um tilflutning stofnana á milli ráðuneyta og mikið af starfi nefndarinnar fór í það að ræða þau mál. Hluti
vandans felst í því að verkefni margra stofnana eru fjölþætt og ekki er hægt að telja alla þætti starfseminnar beint til umhverfismála. Einnig er mjög vandasamt að kljúfa stofnanir upp með tilliti til ólíkra verkefna og tryggja að verksvið þeirra eða ráðuneyta skarist ekki. Hefur meiri hl. nefndarinnar kannað sérstaklega hvort unnt væri að skilja á milli mengunarvarnasviðs og heilbrigðiseftirlits Hollustuverndar ríkisins með því að kljúfa stofnunina upp. Í ljós kom að á því eru margir vankantar og ókostirnir fleiri en kostirnir. Ekki reyndist heldur unnt að láta mengunarvarnasviðið heyra undir umhvrh. en önnur svið undir heilbr.- og trmrh., á svipaðan hátt og frv. gerir ráð fyrir að mengunarvarnasvið Siglingamálastofnunar ríkisins heyri undir umhvrh. en önnur svið stofnunarinnar undir samgrh.
Tilgangur með stofnun umhverfisráðuneytis er m.a. sá að gera umhverfismálum hærra undir höfði innan
stjórnsýslunnar en verið hefur og tryggja samræmi í yfirstjórn þeirra. Með skírskotun til þess telur meiri hl. nefndarinnar rétt að þær stofnanir sem frv. fjallar um flytjist undir yfirstjórn umhvrn., að undanskilinni húsafriðunarnefnd. Með því eykst umhverfisþátturinn í starfi stofnana á næstu árum, þótt ekki megi vanrækja aðra þætti sem gætu eins átt undir önnur ráðuneyti en umhvrn.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.
Í fyrsta lagi er lagt til að lokamálsgrein 1. gr. verði breytt á þann veg að umhvrh. beri að leita samráðs við landbrh. um friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar.
Þetta er gert í því skyni að slíta síður tengslin á milli landbrn. og umhvrn. en meiri hl. telur að þar verði að vera gott samráð á milli og árangur í umhverfisvernd byggist m.a. á því samráði og góðu samstarfi við þá sem eru umráðamenn landsins og það fagráðuneyti sem fjallar um þeirra mál.
Í öðru lagi er lagt til að 21. gr. falli brott. Meiri hl. telur rétt að húsafriðunarmálefni og húsafriðunarnefnd heyri áfram undir menntmrn. eins og áður var tekið fram.
Í þriðja lagi er lagt til að við bætist bráðabirgðaákvæði, sem áður fylgdi 129. máli, um Stjórnarráð Íslands, þó með þeirri breytingu að einungis er gert ráð fyrir endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt. Þetta bráðabirgðaákvæði var fellt niður úr frv. um Stjórnarráð Íslands vegna þess að þessi málefni voru áfram í umfjöllun hjá nefndinni en meiri hl. telur rétt að taka ákvæði um þessa endurskoðun inn aftur.
Í fjórða lagi eru tvær breytingar tæknilegs eðlis. Lagt er til að breytt verði tilvitnun 1. mgr. 1. gr. og einnig gildistökuákvæði frv. í 22. gr.
Þess má geta að auk þess sem hér hefur verið talið um starf nefndarinnar að þessu máli þá var nefndarmönnum í allshn. neðri og efri deildar boðið í heimsókn til Landgræðslu ríkisins að Gunnarsholti. Af óviðráðanlegum ástæðum gátu ekki nema formaður allshn. Nd. þegið það boð en eigi að síður var farið þangað í kynnisferð og fimm nefndarmenn úr báðum deildum skoðuðu húsakynni og starfsemi Landgræðslunnar í Gunnarsholti í síðustu viku.
Búnaðarþing, sem nú situr, fjallaði um þetta mál sérstaklega í síðustu viku og komu fulltrúar frá búnaðarþingi á fund nefndarinnar. Einnig átti formaður nefndarinnar viðræður við jarðræktarnefnd búnaðarþings varðandi þetta mál og nefndinni barst ályktun búnaðarþings eftir fyrstu umræðu málsins og ályktun búnaðarþings eftir aðra umræðu málsins liggur fyrir nú og barst Alþingi í gær.
Ég vil geta þessa sérstaklega að búnaðarþing gerir athugasemdir við frv. sem fjalla um gróðurvernd og eftirlit. Það gerir þær athugasemdir að niður eigi að falla orðin ,,vinna að gróðurvernd`` í 1. málsgr. og einnig falli niður orðið ,,verndun`` í 2. málsgr. sömu greinar. Og einnig falli niður síðasta grein 1. málsgr.
frv. sem fjallar um að þrátt fyrir ákvæði laga um landgræðslu og laga um skógrækt með síðari breytingum geti umhverfisráðherra að fengnum tillögum Náttúruverndarráðs fyrirskipað sérstakar friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar.
Meiri hl. allshn. gerir tillögu um að sú breyting verði á þessari málsgr. að þessar friðunaraðgerðir verði gerðar í samráði við landbrn. Þetta er millileið í málinu, þarna er verið að sætta andstæð sjónarmið og meiri hl. telur þetta ásættanlega lendingu í þessu máli. Hins vegar má geta þess að Guðni Ágústsson skrifar undir málið með fyrirvara sem hann mun að sjálfsögðu gera grein fyrir þegar þessari umræðu verður fram haldið.
Það er ljóst að um þetta mál er mikill ágreiningur í þjóðfélaginu og meiri hl. nefndarinnar fer ekkert í grafgötur með þann ágreining, hann hefur komið fram.
Afgreiðsla þessa máls af hálfu meiri hl. tekur í öllum meginatriðum mið af samkomulagi stjórnarflokkanna sem gert var á sl. hausti þegar málið var lagt fram. Það er þó eitt sem allir ættu að geta verið sammála um, að umhverfismálum þarf að gefa aukið vægi og það þarf að liggja jafnvægi og sátt milli umhverfisverndarsjónarmiða og nýtingarsjónarmiða.
Það er svo, eins og ætíð þegar miklar breytingar eiga sér stað, að menn bera ugg í brjósti um það hvað við tekur. Meiri hl. nefndarinnar telur að flutningur stofnana milli ráðuneyta ætti ekki að þýða að málum þeirra sé verr komið en ella, ekki síst þar sem það er yfirlýstur tilgangur með þessari lagasetningu að styrkja umhverfisverndarþáttinn sem er ótrúlega víðfeðmur. Hins vegar er það skoðun meiri hl. að nauðsynlegt sé að flana ekki að þeirri endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt sem frv. gerir ráð fyrir og sú endurskoðun verði til þess að þræða eðlilegan meðalveg milli nýtingar- og umhverfisverndarsjónarmiða og um þá endurskoðun ríki sátt í þjóðfélaginu sem og þau lög um umhverfisvernd sem ætlunin er að leggja fram frv. um og fjalla um hér á Alþingi þegar fram í sækir.
Eins og ég gat um hér í upphafi þá klofnaði nefndin í málinu en undir álit meiri hl. skrifa Jón Kristjánsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðni Ágústsson sem skrifar undir með fyrirvara og Sighvatur Björgvinsson.
Minni hl. mun síðan gera grein fyrir sínu áliti að sjálfsögðu og brtt. sem liggja hér fyrir á þskj. 725 og 726.