Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég hef fylgst með þessum umræðum af athygli í dag. Við settum hér lög um Tryggingasjóð fiskeldislána á sínum tíma með miklu hraði til þess að reyna að bjarga þessari búgrein þjóðarinnar og í framhaldi af því fylgir svo þetta frv. til laga um ábyrgðadeild fiskeldislána. Ég ætla ekki að ræða þetta efnislega, þó að mig hefði langað til þess, og margt sem hér hefur komið fram bæði hjá hæstv. ráðherra og öðrum þingmönnum, en mér hefur fundist að þennan ágreining sem upp hefur komið hefði mátt leysa í nefnd. Ég álít það að þau sáttahljóð, sem hér hafa komið fram, ætti að nota til þess að reyna að ná sáttum í þessu máli og ég get sagt það fyrir mína parta að ég teldi að það ætti að fella út úr brtt. meiri hl. við 2. gr. b-liðinn og við 3. gr. e-liðinn og brtt. við 6. gr. Þessa þrjá þætti teldi ég að væri ástæða til þess að skoða, hvort ekki er hægt að ná sáttum um þetta. Það breytir ekki aðalatriðum málsins en það sættir sjónarmið ef hitt stendur inni að mínu mati. Ég tel að þetta ætti að skoðast núna og fresta umræðunni og vil skora á hæstv. fjmrh. því að ég hef heyrt í ræðunum að hann vill gjarnan ná sáttum þrátt fyrir allt sem er búið að segja hér áður og ég vænti þess að nefndarmenn í hv. fjh.- og viðskn. sjái sóma sinn í að reyna að ná þessari stöðu. En ég tek undir það að þessir þrír liðir, umfram það sem fjmrh. sjálfur lýsti yfir að hann gæti fallist á, mættu falla út úr brtt. meiri hl. þar sem ég tel að það breyti ekki meginkjarna þess sem er verið að stefna að með því að ná þessu mikilvæga frv. fram, frv. til laga um ábyrgðadeild fiskeldislána.