Námsgagnastofnun
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. sem er á þskj. 735 við frv. til laga um Námsgagnastofnun, einnig við brtt. við það frv. á þskj. 701.
    Ég flyt þessa brtt. ásamt hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur, 6. þm. Reykv. Eins og fram kemur í nál. hv. menntmn. varðandi þetta frv. skrifuðum við tvær sem flytjum þessa brtt. undir nál. með fyrirvara. Þessi fyrirvari varðar 2. gr. frv., f-liðinn í brtt. á þskj. 701 sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Við greinina bætist ný mgr. er orðist svo:
    Ef stofnuð verða landssamtök foreldrafélaga skal þeim heimilt að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa í námsgagnastjórn með málfrelsi og tillögurétti.``
    Fyrirvari okkar var sem sagt við þennan lið þar sem breytingin frá frv. er annars vegar sú að þarna er aðeins gert ráð fyrir áheyrnarfulltrúa í stað fullgilds fulltrúa í námsgagnastjórn, áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétti, og það höfum við sæst á, að fulltrúi foreldra verði áheyrnarfulltrúi, en hins vegar erum við ekki sáttar við það að sá fulltrúi taki ekki sæti í námsgagnastjórn nema ef stofnuð verði landshlutasamtök foreldrafélaga. Þess vegna höfum við flutt þessa brtt., í fyrsta lagi við 2. gr., f-lið á þskj. 701, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Við greinina bætist ný mgr. er orðist svo:
    Landssamtökum foreldrafélaga er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétti í námsgagnastjórn.``
    Og síðan í öðru lagi:
    ,,Við bætist svofellt ákvæði til bráðabirgða:
    Meðan ekki eru starfandi landssamtök skal tilnefningum skv. 3. mgr. 2. gr. hagað þannig að samtök foreldrafélaga í hverju fræðsluumdæmi skiptast á um að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa til eins árs í senn. Ef ekki eru starfandi foreldrasamtök í fræðsluumdæmi skulu fræðsluráðin hafa tilnefningarréttinn.``
    Þarna viljum við tryggja að þessi áheyrnarfulltrúi foreldra geti strax tekið sæti í námsgagnastjórn en að það sé ekki bundið því að hann fái einungis þar áheyrnarrétt ef landssamtök foreldrafélaga verða stofnuð. Í frv., eins og það var lagt fram, var gert ráð fyrir því að það yrði í hendi ráðherra fyrst um sinn, á meðan ekki væru til landssamtök foreldrafélaga, til hvaða félags væri leitað um að tilnefna fulltrúa í námsgagnastjórn. Við viljum hins vegar færa þessa tilnefningu heim í fræðsluumdæmin og fela heimamönnum að taka slíka ákvörðun. Hins vegar hlýtur það þá að koma í hlut hæstv. ráðherra að ákveða úr hvaða fræðsluumdæmi verði tilnefnt í fyrsta sinn í námsgagnastjórn.
    Þetta er sem sagt brtt. okkar. Ég vænti þess að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta. Það hefur mikið verið rætt um það á undanförnum árum og ég held að skólamenn ekki síður en foreldrar séu sammála um að nauðsynlegt sé að auka samstarf foreldra við skólana, gera þá ábyrgari um hvað fer fram í skólanum, að þeir geti betur fylgst með

námsefni og starfsháttum skóla yfirleitt. Ég lít svo á að þarna sé stigið eitt stórt skref í þá átt með því að þeir eygi tækifæri til þess að fylgjast með, hafi málfrelsi og tillögurétt varðandi stjórn Námsgagnastofnunar.