Öryggi á vinnustöðum
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Í þessum breytingum er lagt til að lagfærð verði ákvæði laga um vinnu barna og unglinga. Tilgangur þessara breytinga er annars vegar að auka vernd gegn slysum og hins vegar að samræma aldursmörk við þau sem gilda í lögum um vernd barna og ungmenna, nr. 53/1966, með áorðnum breytingum.
    Eins og hv. þm. vita hefur vinna barna og unglinga aukist mjög á undanförnum árum, ekki bara þátttaka í sumarvinnu af ýmsu tagi sem börn og unglingar hafa ævinlega stundað heldur líka vinnu með skóla. Fáar kannanir hafa í raun verið gerðar í þeim efnum. Kvennalistinn lagði fram þáltill. um þetta efni, þ.e. að könnuð verði launavinna framhaldsskólanema. Þessi könnun hefur þó ekki farið fram enn þá. Það er mjög mikilsvert að gera sér grein fyrir því hvers konar vinnu unglingarnir vinna, hvers vegna þeir vinna og hvaða áhrif það hefur á skólagöngu þeirra. Ég hef hér meðferðis í ræðustólinn könnun sem framkvæmd var meðal nemenda í 4.--9. bekk Hólabrekkuskóla og gefin út af Félagsvísindadeild. Þetta er grunnskóli hér í Reykjavík og þar kemur fram að 31% grunnskólanema stunda vinnu með skóla sínum og reyndar fleiri stúlkur en drengir og þær vinna lengri vinnutíma. Að vísu er langmest af vinnu þeirra sem flokka mætti undir létt og hættulítil störf en þó er þarna einnig um að ræða verkamannastörf sem ekki eru nánar skilgreind.
    Tíundi kafli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, fjallar um vinnu barna og unglinga. Þessi kafli laganna fylgir reyndar með á eftir grg. þessa frv. sem fskj. I til nánari glöggvunar fyrir hv. þm. Þó að áðurnefnd lög hafi verið sett 1980 hafa enn ekki verið settar sérstakar reglur um framkvæmd þessa þáttar laganna. Reynslan hefur sýnt að ákvæðin, sem varða vinnu ungmenna, veita þeim ekki næga vernd gegn slysum. Allt of mörg dæmi eru þess að börn og unglingar yngri en 15 ára hafa verið sett til vinnu við mjög hættulegar vélar sem þau kunnu lítið með að fara eða þá að búnaði vélanna var áfátt að einhverju leyti. Slíkt getur og hefur reyndar leitt til alvarlegra slysa. Ég gæti nefnt nokkur dæmi sem komið hafa inn á borð Vinnueftirlitsins, að ég veit til, en ég mun ekki gera það hér.
    Enn fremur ber á það að líta að ákvæðin um vinnu barna og unglinga í lögum nr. 46/1980 eru ekki í samræmi við ákvæði laga um vernd barna og ungmenna, nr. 53/1966, um sama efni hvað varðar aldursmörk. Í marsmánuði 1983 var reyndar gerð eftirfarandi breyting á skilgreiningu barna og ungmenna í þessum síðastnefndu lögum svohljóðandi:
    ,,Með börnum er samkvæmt lögum þessum átt við einstaklinga innan 16 ára aldurs, en ungmenni eru unglingar á aldursskeiði 16--18 ára ...`` Mér hefur gefist kostur á að líta á drög að frv. sem er árangur

af endurskoðun á lögunum um vernd barna og ungmenna og þar hefur þessum aldursmörkum ekki verið breytt. Þeim er ætlað að gilda áfram.
    Í þessu frv. eru aldursmörk hækkuð til samræmis í því skyni að lengja það æviskeið sem í lögum er kölluð bernska. Jafnframt er bætt inn sérstöku ákvæði um hættulegar vélar og hættulegar aðstæður að gefnu tilefni. Báðar þessar breytingar eru gerðar með það í huga að draga úr slysahættu og óhóflegu vinnuálagi á börn. Brýnt er að settar verði nánari reglur um framkvæmd þessara lagaákvæða strax þegar breytingar þessar hafa náð fram að ganga.
    Ég vil þá, með leyfi hæstv. forseta, fjalla um greinar frv. Það er þá 1. gr.
    ,,59. gr. laganna orðist svo:
    Barn merkir í lögum þessum einstakling innan 16 ára aldurs.
    Ungmenni merkja í lögum þessum unglinga á aldursskeiði 16--18 ára.``
    Þarna er sem sé verið að hækka aldursmörkin úr 14 í 16 ára fyrir börn og úr 14--17 ára í 16--18 ára fyrir ungmenni í samræmi við áorðnar breytingar á lögunum um vernd barna og ungmenna.``
    2. gr. frv. hljóðar svo:
    ,,60. gr. laganna orðist svo:
    Börn yngri en 14 ára má ekki ráða nema til léttra, hættulítilla starfa. Ekki má láta börn á aldrinum 14 og 15 ára, né heldur þau sem yngri eru, vinna við hættulegar vélar og við hættulegar aðstæður.
    Stjórn Vinnueftirlits ríkisins setur leiðbeinandi skilgreiningar um hvað teljast létt, hættulítil störf, hættulegar vélar og hættulegar aðstæður, sbr. lög nr. 53/1966, um vernd barna og ungmenna, og að höfðu samráði við Barnaverndarráð Íslands.``
    Í athugasemdum við þessa grein er þess getið að hér er að hluta til stuðst við fyrri skilgreiningu á börnum, þ.e. að börnum yngri en 14 ára er einungis ætlað að vinna létt og hættulítil störf. Hins vegar má fela 14 og 15 ára börnum erfiðari störf en þau sem skilgreind eru sem létt, en sérstök áhersla er jafnframt lögð á að hvorki þau né yngri börn megi vinna við hættulegar vélar eða hættulegar aðstæður. Það þykir rétt að stjórn Vinnueftirlitsins hafi samráð við Barnaverndarráð Íslands þegar hún setur nánari reglur og
skilgreiningar um vinnu barna og ungmenna.
    3. gr. frv. fjallar í raun um samræmingu:
    ,,Í stað orðsins ,,unglinga`` í fyrri málsgrein 61. gr. komi: barna. Í stað orðsins ,,unglingar`` í síðari málsgrein greinarinnar komi: ungmenni.`` Og þarfnast þessi grein raunar ekki skýringar.
    4. gr. hljóðar svo:
    ,,Lög þessi öðlast þegar gildi.`` Hún þarfnast heldur ekki skilgreiningar.
    Ég vil geta þess einnig að sem fskj. með frv. er 41. gr. laga nr. 53/1966, um vernd barna og ungmenna, sem fjallar einmitt um vinnu barna og ungmenna. Sömuleiðis er þriðja fskj. með þessu frv. og það er IV. kafli reglugerðar nr. 105/1970, um vernd barna og ungmenna.

    Ég tel ekki ástæðu til að hafa lengra mál um þessar þörfu breytingar sem hér eru lagðar til og eru í raun smávægilegar ef litið er til þess hversu fljótir hv. þm. gætu verið að taka tillit til þeirra og meðhöndla þær á jákvæðan hátt en þær geta skipt miklu máli fyrir vernd barna og ungmenna gegn slysum við vinnu sína.
    Að lokinni umræðu legg ég til, hæstv. forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og til félmn. þessarar deildar.