Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Ingi Björn Albertsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka svör en ég held að það hafi náttúrlega komið fram að sá forseti sem hér situr er vanalega vel upplýstur og e.t.v. var ég að gera honum grikk með því að leggja þessa fyrirspurn fram núna, en sætti mig fullvel við hans svör og mun endurtaka fyrirspurnina þegar forsetaskipti hafa átt sér stað.