Ábyrgðadeild fiskeldislána
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Páll Pétursson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Við sem skipum í þessu máli minni hl. í hv. fjh.- og viðskn. fréttum af því um hádegi í dag að hv. 10. þm. Reykv. Guðmundur G. Þórarinsson og hæstv. fjmrh. væru búnir að gera samkomulag. Væntanlega heiðursmannasamkomulag, ,,gentleman's agreement``, um afgreiðslu þessa máls. Okkur var síðan á fundi í fjh.- og viðskn. sýnt þetta samkomulag og ég fyrir mitt leyti mun ekki standa gegn því að það nái fram að ganga og ekki skipta mér af því.