Ábyrgðadeild fiskeldislána
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um brtt. við stjfrv. sem allir hv. stjórnarþingmenn stóðu að og fjallar um ríkisábyrgðir. Hér er verið að breyta þessu frv. þannig að frv., verði það að lögum, sé sveigjanlegra og komi að notum. Þess vegna styð ég þessa fram komnu tillögu og segi já.