Vinnubrögð forseta
Fimmtudaginn 15. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 2. þm. Vestf. vill forseti taka fram að samkvæmt upplýsingum skrifstofu Alþingis hefur hvað eftir annað komið fyrir að gleymst hafi að leita afbrigða hér í þingsölum. Venjulega hefur slíku verið bjargað með því að færa það til bókar án þess að þess væri getið hér í þingsal. Forseta þótti hins vegar rétt að geta þess og leita álits á því hvort svo mætti gera.
    Ég geri ráð fyrir að enginn hv. þm. hafi gert ráð fyrir því þegar núv. forseti var kjörinn að hann væri óskeikull. Og forseti hefur aldrei haldið því fram. Hér var um nokkuð óvenjulega afgreiðslu að ræða og forseti gleymdi einfaldlega að leita afbrigða, svo einfalt var það. Það harmar forseti en hefur ekki hugsað sér að hafast svo að í framtíðinni. Og mun þetta nú líklega verða lexía sem nægir.
    Vegna þeirrar fullyrðingar hv. 2. þm. Vestf. að forseti hafi unnið ólýðræðislega hér á síðasta fundi skal upplýst að hér var um að ræða 30 mínútna utandagskrárumræðu sem þingflokksformenn höfðu góðfúslega leyft forseta að láta fara fram á þingflokksfundartíma. Umræðan teygðist hins vegar og voru liðnar nær 15 mínútur til viðbótar við umsaminn tíma. Þegar forseti neyddist til að slíta fundi voru fimm hendur á lofti. Hæstv. ráðherrar höfðu gert athugasemd við þetta þar sem fjölmörg mál lágu fyrir þingflokkum. Forseta var því nauðugur einn kostur að slíta fundinum og hafði enda fullt vald til þess.