Meðferð mála á Alþingi
Fimmtudaginn 15. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. 16. þm. Reykv. gerir örstutta athugasemd. En vegna orða hans hér áðan vil ég taka fram að á sl. hausti tók við nýtt skipulag. Það fer ekki á milli mála að það er hlutverk skrifstofu Alþingis að taka á móti nýjum þingmönnum og leiðbeina þeim og forseti mun sjá svo til að það verði gert.