Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins leiðrétta hv. 16. þm. Reykv. ef hann hefur misskilið orð mín svo að ég hafi álitið að það væri af kjarkleysi að þingmenn vildu heldur láta málin liggja í nefndum þegar þeir sæju fram á að þau ættu ekki stuðning en að láta fella þau. Það er mikill misskilningur. Það er ekki af kjarkleysi, það er held ég frekar af skynsemi. Vegna þess að þeir sjá þá fram á að þeir hafi tækifæri til þess að vinna máli sínu stuðning og geta endurflutt það á næsta þingi. Ef við göngum út frá því að eitt kjörtímabil er fjögur ár hafa þigmennirnir fjögur ár til þess að vinna máli sínu stuðning ef þeir telja það ekki eiga nógan stuðning í upphafi. Ég gæti nefnt hv. þm. dæmi um slíkt mál sem ég flutti og varð að athlægi fyrir hjá þjóðinni þegar ég flutti það fyrst. Það var varðandi notkun ökuljósa á bifreiðum allan sólarhringinn, allan ársins hring. Ég flutti þetta mál og það komst aðeins til nefndar, ég man ekki hversu mörg þing, en smátt og smátt breyttust viðhorfin og á endanum var Alþingi sammála um að þetta bæri að gera og nú aka Íslendingar með ljósum allan ársins hring, allan sólarhringinn. Og ég held að flestir geri sér í dag grein fyrir því að þetta hafi verið skynsamleg ráðstöfun. En í upphafi töldu þeir að þingmaðurinn sem flutti málið væri eitthvað smábilaður í kollinum. Þetta vildi ég til gamans nefna, hv. 16. þm. Reykv., sem dæmi um að stundum er skynsamlegt að láta málin bíða, og þurfa ekki endilega að afgreiðast á yfirstandandi þingi því það koma önnur tækifæri. En ef málið er fellt er það ekki endurflutt. Þetta finnst mér nauðsynlegt að komi fram, að það geta verið gildar ástæður til þess að afgreiða málin á þennan hátt.