Meðferð mála á Alþingi
Fimmtudaginn 15. mars 1990


     Flm. (Ásgeir Hannes Eiríksson):
    Virðulegi forseti. Mig langar fyrst að víkja máli mínu að beiðni þingflokks um að mál fari ekki til nefndar. Ég mun þá óska eftir því í mínum þingflokki að sú beiðni komi. Ég sé í rauninni ekki að það þurfi að vísa málinu til nefndar þar sem þetta snertir eingöngu vinnureglur á Alþingi sjálfu og mun því halda beiðni minni til streitu og óska eftir fresti til þess að leggja fram beiðni frá þingflokknum svo að fara megi að þingsköpum í því máli.
    Ég mun síðan ljúka þessari umræðu núna --- ég ætla aðeins að doka við á meðan forsetar ráða ráðum sínum. Því mér þykir ákaflega ósennilegt að hv. þm. Salome Þorkelsdóttir hafi orðið að þjóðarathlægi eins og hún sagði hér áðan, ég bara sé það ekki fyrir mér.
    En það má vel hafa það eins og Salome benti á, ef menn vilja vera klókir í sínum málflutningi, mér líst að sjálfsögðu vel á það. Þá er einfaldlega bara að óska eftir því að málið verði ekki afgreitt. Þingmenn hafi möguleika á að draga sín mál úr nefndum eða fresta afgreiðslu þeirra til næsta þings eða eitthvað slíkt. ( Forseti: Þingmaður fékk leyfi til að gera örstutta athugasemd, ég hlýt að benda á það.) Miðað við það sem á undan hefur gengið þá er þetta frekar stutt athugasemd í mínum huga, því dagur er jú þúsund ár og þúsund ár dagur ei meir.