Þingfundarstörf í efri deild
Föstudaginn 16. mars 1990


     Halldór Blöndal:
    Ég þakka hæstv. forseta að hann skuli hafa lýst því yfir að hann muni verða við minni beiðni um að umræðunni ljúki ekki í dag. Það er laukrétt hjá hæstv. forseta, ég hef ekkert við það að athuga að umræðan hefjist, laukrétt. Ég skal ekkert tefja umræðuna. En ég er mjög þakklátur honum fyrir að hafa tekið þannig í mál mitt eða ég skil það svo að hann hafi orðið við beiðni minni um að umræðunni haldi áfram eftir helgi.