Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Ræða formanns þingflokks Alþfl. veldur mér ekki vonbrigðum, ég sé að þó ég hafi verið í burtu nokkra hríð þá hefur hann ekki breyst og kemur mér ekki á óvart. Ég vil ítreka það sem ég sagði áður, hæstv. forseti, að mér er kunnugt um að það var samkomulag um að byrja kl. 10 og ljúka þingfundi kl. 2. Var það ekki rétt? ( Forseti: Ekki nákvæmlega um fundarlok.) Nú já, þá hef ég fengið rangar upplýsingar. En ég mun kynna mér hvort það er rétt sem um það er sagt. Það má vera að hugmynd þingsins sé að halda þá áfram til kvöldmatar eða miðnættis og byrja 10 að morgni? Kæmi mér ekki á óvart. Það er þó ekki kjarni málsins. Kjarni málsins er sá að samkvæmt starfsáætlun þingsins er ekki gert ráð fyrir fundum í deildum í dag. Það er öldungis ljóst.
Ég veit ekki hvort forseta þingsins er það ljóst en það voru merkilegir hlutir að gerast norður á Ólafsfirði í gær. Og við, nokkrir þingmenn kjördæmisins og m.a. tveir ráðherrar, vorum norður á Ólafsfirði til að taka þátt í fögnuði fólksins yfir því að Múlinn skyldi unninn. Ekki man ég eftir því að neinn þar hafi verið í fjarskiptasambandi við formann þingflokks Alþfl. um það hvort yrðu deildarfundir í dag, ekki minnist ég þess.
Þegar ég kom heim var mér sagt frá því að þingfundir hæfust kl. 10 og er út af fyrir sig kannski lítið við það að athuga ef þingmeirihluti og forseti ætla ekki að misnota slíka liðkun frá stjórnarandstöðu. Ef þingfundir hefjast hér kl. 10 árdegis er auðvitað fráleitt að hugsa sér að á föstudegi haldi þeir áfram lengur en til kl. 2. Ég held að við getum verið sammála um það. Það liggur a.m.k. alveg ljóst fyrir í mínum huga að ef samstarfið við stjórnarandstöðuna á að vera með þeim hætti sem formaður þingflokks Alþfl. vill þá má vera að það verði hávaðasamt hér í deildinni.
Forseti deildarinnar vísaði til orða minna og sagði að ég hefði ekkert við það að athuga að umræður um þetta mál hæfust. Ég gat ekki skilið þessi orð
hæstv. forseta öðruvísi en svo að hann vildi verða við beiðni minni. Þegar ég túlkaði ummæli hans þannig sagði hann að ég hefði lagt sér orð í munn. Það var með öðrum orðum ekki verið að svara beiðni minni úr forsetastóli, það átti að hefja umræðurnar af forseta deildarinnar án þess að svara kurteislegri beiðni minni. Þetta er innlegg forseta deildarinnar til þess að við getum unnið hér í samkomulagi. Þess á milli kemur svo formaður Alþfl. upp með hrópyrði. Ég held við verðum aðeins að reyna að taka okkur á og ég held að ég verði að ítreka beiðni mína til forseta deildarinnar um að hann svari því skýrt og skorinort hvort hann muni verða við beiðni minni um það að framhald þessarar umræðu verði á þriðjudag. Fyrir því eru tvær ástæður. Í fyrsta lagi sú ástæða að samkvæmt starfsáætlun þingsins, sem forseti deildarinnar samdi en ekki ég, er gert ráð fyrir því að skýrslur verði ræddar í sameinuðu þingi í dag. Þetta er fundardagur sameinaðs þings. Ég fékk þessar upplýsingar frá
skrifstofu þingsins. Ég vildi óska eftir því að forseti léti ná í starfsskýrslu þingsins og ég mun doka við á meðan. Ég óska eftir að fá þær í hendur hér. Ég er að tala um fundarsköp og forseti hristir höfuðið yfir því að ég fari með rétt mál. Ég vildi þá gjarnan fá tækifæri til að biðjast afsökunar hér í stólnum ef ég fer með rangt mál.
Ég fór hér fram til skrifstofunnar og þar var mér sagt að í dag væri gert ráð fyrir því að ræddar væru skýrslur í sameinuðu þingi. Nei, það er enginn fundur meira að segja, enginn fundur í dag. ( Gripið fram í: Einmitt.) Ég fékk þessar upplýsingar hjá starfsmönnum þingsins sem hafa litið vitlaust á plaggið. Við skulum ekki gera grín að því. ( EG: Þú skalt ekki koma því yfir á aðra.) Er nú formaður þingflokks Alþfl. að segja að ég segi þetta ósatt? Ég held að maðurinn verði æ líkari sjálfum sér eftir því sem lengra líður á þennan fund. Það er augljóst af þessu, hæstv. forseti, að við áttum að eiga frí í dag. Og nú er byrjaður fundur kl. 10 og ég óska eftir að fá svar við þessari spurningu. Auðvitað getum við teygt lopann, hæstv. forseti, og velt fyrir okkur þinghaldinu lengi. Auðvitað er ég reiðubúinn til þess að rifja ýmislegt upp í því sambandi. Ég gerði mjög stutta og kurteislega athugasemd við fundarsköpin.
Ég vil líka segja, vegna þess að þingflokksformenn eru stundum að semja um að breyta reglulegum þingfundatíma hér, að nauðsynlegt er að slíkt gerist fyrr en stjórn þingsins reynir að gera nú til þess að hinn almenni þingmaður, sem ekki á þátt að slíku samkomulagi, geti gert viðeigandi ráðstafanir. En umfram allt, herra forseti, ég óska eftir að fá svar við eðlilegri beiðni. Beiðni mín var þessi: Ætlar hæstv. forseti að verða við þeirri beiðni minni, vegna þess að þessi fundur er á óvenjulegum tíma, vegna þess að í starfsskýrslu þingsins er ekki gert ráð fyrir fundi í deildinni, að ég fái svigrúm og tækifæri til þess að setja fram mínar skoðanir á þriðjudag? Þetta er mjög einföld, kurteisleg og ákveðin beiðni og studd mjög eðlilegum rökum.