Þingfundarstörf í efri deild
Föstudaginn 16. mars 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Fundur núna kl. 10 var tilkynntur á fundi í fyrradag hér í hv. efri deild, eftir samkomulag við formenn þingflokka, eins og ég sagði áður. Ég mun haga störfum mínum svipað og ég hef reynt að gera hingað til, að leita eftir samkomulagi við hv. deildarmenn um framgang mála. Ég mun því ekki ljúka þessari umræðu án þess að vita hvort hægt er að fá frið um þau endalok þó að umræðan hefjist nú.