Yfirstjórn umhverfismála
Föstudaginn 16. mars 1990


     Ingi Björn Albertsson (frh.) :
    Hæstv. forseti. Það var athyglisvert sem hv. þm. Guðni Ágústsson sagði hér í ræðu sinni er hann lýsti samstarfi stjórnarflokkanna í allshn. Sjálfsagt er það talandi dæmi um hvernig samstarf stjórnarflokkanna almennt er og væntanlega á ríkisstjórnarheimilinu líka því að samstarf þeirra félaga í allshn. er það að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hefur einu sinni mætt á fund þessarar nefndar og það var til þess að greiða atkvæði um það að koma 129. máli út úr nefnd. Það er nú allt samstarfið sem hv. þm. var hér að vitna til og segir kannski meira en ég get lýst. ( Gripið fram í: Hann var ekkert á þeim fundi.) Nú, hann var ekki einu sinni á þeim fundi. Það kemur þá enn betur í ljós samstarfið. Hins vegar minnist ég þess að hv. þm. kom augnablik inn á einn fund og einn fundur er rétt með farið. Ég bið hv. þm. afsökunar ef málefnin hafa eitthvað skolast til.
    Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða um verkefni sem eiga að færast til umhvrn. og ég tel algjört skilyrði að viðstaddur slíka umræðu sé sá ráðherra sem með það málefni á að fara og hlusti á rök stjórnarandstöðunnar og það mál sem stjórnarandstaðan hefur fram að færa. Þess vegna vil ég nú fara þess á leit að hæstv. ráðherra, sem ég hygg að hljóti að vera í húsinu, verði kallaður í þingsal og hlýði á mál stjórnarandstæðinga. ( Forseti: Vegna þessara orða vill forseti geta þess að ljóst var að fyrir hádegi í dag yrði ríkisstjórnarfundur og því yrði mjög erfitt fyrir hæstv. ráðherra sem þetta mál snertir að vera viðstaddir umræðuna. Af þeim sökum gerði forseti ráðstafanir til þess að þeir ræðumenn sem hér töluðu í málinu gerðu ekki kröfu til þess að ráðherrar yrðu viðstaddir umræðuna. Ég get hins vegar skilið óskir hv. 5. þm. Vesturl. um það að hæstv. umhvrh. verði hér. Hann er væntanlegur í húsið tiltölulega fljótlega og vil ég þess vegna spyrja hv. ræðumann hvort hann fallist á að fresta ræðu sinni enn á ný og hleypa öðrum ræðumanni fram
fyrir sig sem vildi fjalla um málið án þess að hæstv. ráðherrar væru viðstaddir eða hvort forseta væri þá ekki heimilt að taka fyrir annað málið á dagskrá, um fjárgreiðslur úr ríkissjóði, á meðan ráðherrar eru ekki komnir til fundar.)
    Hæstv. forseti. Þegar þessi fundur var um það bil að hefjast kom hæstv. forseti að máli við mig um það að hæstv. umhvrh. þyrfti að sitja ríkisstjórnarfund og hvort sá sem hér stendur væri tilbúinn að hleypa einum ræðumanni fram fyrir sig í þessu máli. Við því varð sá sem hér stendur góðfúslega. Það var hins vegar mistúlkað á einhvern hátt og tveir ræðumenn töluðu hér á undan þeim sem hér stendur. Ég féllst á það að fresta ræðu minni um stund þar sem forseti deildarinnar boðaði það að ráðherra væri væntanlegur í húsið. Það var ástæðan fyrir því að ég féllst á frestunina. Nú er liðinn klukkutími og ráðherra er ekki enn hér þó að hann hafi sýnt sig í mýflugumynd um tíuleytið þannig að ég mun þiggja boð forseta um að fresta enn ræðu minni og hlýt að gera það að kröfu

að hæstv. ráðherra sinni þinglegri skyldu sinni og hlusti í það minnsta á þau mál sem hann varða. Ég fellst hins vegar ekki á það að hleypa enn á ný ræðumönnum fram fyrir mig í þessum málaflokki. ( Forseti: Forseti getur fallist á þetta og mun því taka fyrir annað málið á dagskrá, fjárgreiðslur úr ríkissjóði á eftir. Hins vegar vill forseti taka alveg skýrt fram svo að það fari ekkert á milli mála hér í hv. deild að forseti hefur fullt leyfi til að hagræða þeim sem á mælendaskrá eru svo að jöfnuður komi þar bæði milli flokka og milli andstæðinga og stuðningsmanna tiltekinna mála sem eru til umræðu.) Hæstv. forseti. Mér er þetta fyllilega ljóst. Hins vegar var staðan sú að ég var í miðri ræðu og ég held að forseta sé það alveg ljóst. Og ég held að forseti hafi ekki þau völd að slíta ræður manna í sundur margsinnis þó að ég geri mér alveg grein fyrir að forseti hafi völd til að hagræða mælendaskránni að einhverju leyti. ( Forseti: Um þetta ætlar forseti ekki að deila við hv. þm. en ræðu hans er nú frestað á nýjan leik og fyrsta dagskrármálinu jafnframt.)